Söngskemmtun: Ólafur

Kjartan og Bjarni Frímann

Hvar

Norðurljós

Hvenær 

19. mars 2021 kl. 20:00

| Um tónleikana

Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón

Bjarni Frímann Bjarnason píanó


Á tónleikunum sem bera yfirskriftina „Sungið úr dagbókinni“ munu listamennirnir flytja nokkrar aríur sem Ólafur Kjartan hefur sungið á fjölum hinna fjölmörgu óperuhúsa þar sem hann hefur komið fram og einnig mun hann flytja nokkrar aríur úr dagbókinni framundan.


Ólafur Kjartan Sigurðarson er íslenskum óperu- og tónleikagestum að góðu kunnur.  Hann var fyrsti fastráðni söngvarinn við Íslensku óperuna árin 2001-2004 og fór þar með fjölmörg hlutverk.  Síðast kom hann fram á Íslandi árið 2017 sem Scarpia í Toscu og hlaut Íslensku tónlistarverðalaunin sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverkinu.


Hlutverkalisti Ólafs Kjartans er orðinn langur og fjölbreyttur, en á undanförnum misserum hafa burðarhlutverk í óperum Wagners og Verdis verið hvað fyrirferðarmest; Rigoletto, Falstaff, Macbeth, Iago, Renato, Alberich, Hollendingurinn fljúgandi, Telramund og Klingsor.


Næsta sumar fer Ólafur Kjartan með hlutverk Biterolf í Tannhäuser á Wagnerhátíðinni í Bayreuth í Þýskalandi ásamt því að hefja æfingar á nýrri uppfærslu á Niflungahringnum sem frumsýndur verður í Bayreuth sumarið 2022, en þar fer hann með hlutverk Alberich. Það hlutverk verður áfram áberandi því framundan er einnig nýr Niflugahringur hjá óperunni í Peking í Kína. Af öðrum verkefnum á komandi misserum má nefna Lohengrin í Barcelona og Hollendinginn fljúgandi í Colorado.


Ólafur Kjartan hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín sem óperusöngvari, þar á meðal Íslensku Tónlistarverðlaunin og Grímuna.


Bjarni Frímann Bjarnason hefur verið Tónlistarstjóri Íslensku óperunnar frá árinu 2018 og á að baki glæsilegan tónlistarferil sem hljómsveitarstjóri og píanóleikari. Hann hefur stjórnað uppfærslum Íslensku óperunnar á undanförnum árum við frábærar undirtektir áhorfenda og lof gagnrýnenda.


Bjarni Frímann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarflytjandi ársins 2020.


Hann stundaði nám í hljómsveitarstjórn við Hanns Eisler tónlistarháskólann og hlotið fyrstu verðlaun í Hanns Eisler keppninni í Berlín árið 2012. Bjarni Frímann hefur komið fram víðsvegar í Evrópu bæði sem strengja- og hljómborðsleikari og stjórnað mörgum af helstu hljómsveitum landsins s.s. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, CAPUT og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Hann hefur einnig komið fram sem píanóleikari með fjölmörgum söngvurum og var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2016.



| Aðrir tónleikar

Share by: