Örlagaþræðir

Tónskáld

Richard Wagner/Robert Schumann

Líbrettó

Maria Stuart/Mathilde Wesendonck

Tungumál

Þýska

Lengd

40 mín. / 1 þáttur

Frumsýning

Frestað  

| Um sýninguna

Sýningunni er frestað um óákveðinn tíma vegna samkomubanns.


Verkið Örlagaþræðir er samrunaverk þar sem söngur og dans renna saman í túlkun á ljóðum Mariu Stuart og Mathilde Wesendonck.
Robert Schumann samdi tónlistina við ljóð Mariu en Richard Wagner við ljóð Mathilde.
Umfjöllunarefni kvennanna eru ólík og lifðu þær á ólíkum tímum en þó er eitthvað sem þær eiga sameiginlegt.
Báðar voru þær fullar af ástríðu og þrótti en örlaganorninrnar spunnu þeim ólík örlög.
Hvorug náði að lifa í frelsi, báðar voru leiksoppar örlaganna.
Maria var tekin af lífi eftir valdatafl og pólitískar tilfæringar og Mathilde varð að beygja sig undir væntingar samfélagsins og neita sér um eldheita ást Wagners.
Ljóðin verða túlkuð af þeim 
Auði Gunnarsdóttur sópransöngkonu og Láru Stefánsdóttur dansara. Á flygilinn leikur Snorri Sigfús Birgisson og um leikmynd og búninga sér Ásta Guðmundsdóttir.
Sviðsetning er í höndum 
Níelsar Th. Girerd.

| Aðrar sýningar