Madama Butterfly

Tónskáld

Giacomo Puccini (1858-1924)

Líbrettó

Luigi Illica og Giuseppe Giacosa

Tungumál

Ítalska

Lengd

135 mín. / 3 þættir

Frumsýning

4. mars 2023

| Um viðburðinn


Madama Butterfly
eftir ítalska tónskáldið Puccini gerist í Japan um aldamótin 1900. Hún er ein af þeim óperum sem hvað oftast eru sviðsettar í heiminum og þykir jafnframt ein sú allra fallegasta. Óperan er harmþrungin saga sem fjallar um ástina, löngunina eftir betra lífi, brostnar vonir og missi.

 

Michiel Dijkema leikstýrir uppfærslunni, en hann hefur leikstýrt fjölmörgum þekktum uppfærslum víða um heim s.s. Tosca í Leipzig, Turandot í Magdeburg og La Vie Parisienne í Vinaróperunni. Michiel hannar sjálfur leikmyndina en María Th. Ólafsdóttir hannar búningana.

 

Cio Cio San er ung japönsk stúlka sem verður ástfangin af sjóliðsforingja í Bandaríska hernum með örlagaríkum afleiðingum. Hann giftist henni en hana dreymir um betra líf fjarri fátækt og erfiðleikum. Þegar hann fer frá Japan er hún barnshafandi og bíður í þrjú ár eftir því að hann snúi til baka að sækja hana og son þeirra, sem hann hafði ekki vitneskju um og fari með þau til Bandaríkjanna. Hann snýr aftur til Japan að þremur árum liðnum með bandarískri eiginkonu sinni sem hefur samþykkt að ala upp soninn og á einu andartaki deyja allir draumar hennar og hún sér þá einu leið að taka sitt eigið líf.

 

Óperan var frumsýnd í La Scala 17. febrúar 1904 og fékk mjög slæmar viðtökur. Tónskáldið tók viðbrögð áhorfenda mjög nærri sér og skilaði greiðslunni sem hann hafði fengið fyrir að semja óperuna. Eftir nokkrar breytingar var óperan sýnd aftur nokkrum mánuðum síðar í Brescia og sló þá í gegn. Hún hefur allar götur síðan verið meðal vinsælustu óperum tónbókmenntanna um allan heim.


Sýningar eru 4., 11., 18., 26 mars og 1. apríl í Eldborg.

| Listrænt teymi

Hljómsveitarstjóri
Levente Török

Leikstjóri
Michiel Dijkema

Leikmyndahönnuður
Michiel Dijkema

Búningahönnuður
María Th. Ólafsdóttir

Ljósahönnuður
Þórður Orri Pétursson

New Paragraph

| Hlutverk

Goro
Snorri Wium

Keisaralegur fulltrúi

Unnsteinn Árnason

Prins Yamadori
Jón Svavar Jósefsson

Yakuside
Jón Ingi Stefánsson

Móðir Cio-Cio San
Sigurlaug Knudsen

Eldri frænka
Hulda D. Proppé

Yngri frænka
Bernedett Hegyi

Dolore
Tómas Ingi Harðarson

New Paragraph

| Aðrir viðburðir

Share by: