Valkyrjan (Die Walküre) AFLÝST
Tónskáld
Richard Wagner
Tungumál
Þýska
Frumsýning
2022
| Um sýninguna
Niflungahringur Richards Wagner er án nokkurs vafa ein metnaðarfyllsta ópera sem fyrirfinnst í tónlistarsögunni. Fjórar óperur mynda verkið og við smíði sögunnar sótti Wagner ekki aðeins efni í hið þýska Niflungaljóð, heldur einnig Eddukvæði, Snorra-Eddu og Völsunga sögu sem hann átti í fórum sínum í þýskri þýðingu. Hann vann að verkinu í um aldarfjórðung og hér fékk gáfa hans bæði sem tónskáld og textahöfundur að njóta sín til fulls.
Efnisþráður Valkyrjunnar er að miklu leyti sóttur í Völsunga sögu. Fárviðri geisar og Siegmund leitar skjóls í húsi Sieglinde og manns hennar, Hundings. Þau Sieglinde fella hugi saman og valkyrjan Brynhildur, dóttir Óðins, óhlýðnast föður sínum með því að liðsinna Sigmundi þar sem hann heyr einvígi við Hunding. Óðinn refsar henni með því að svipta hana guðdómleikanum, breytir henni í mennska konu sem skal liggja sofandi á bjarginu umvafin vafurlogum og ekki vakna fyrr en mikil hetja fær sigrast á logunum og vakið hana með kossi.
Þessi magnaða ópera er eitt af helstu meistaraverkum tónlistar á 19. öld og Valkyrjureiðin fræga er flestum kunn. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Valkyrjan er sett upp á Íslandi.
Sópransöngkonan Iréne Theorin sem fer með hlutverk Brynhildar hefur sungið hlutverkið m.a. við Staatsoper Berlin undir stjórn Daniels Barenboim. Leikstjórinn Julia Burbach er fastráðin við Covent Garden í Lundúnum. Vídeólistamaðurinn Tal Rosner hefur meðal annars unnið til BAFTA-verðlaunanna, og m.a. starfað við National Theatre í Lundúnum og Lincoln Center í New York.
Valkyrjan er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar á Listahátíð.
| Myndir
| Listrænt teymi
Hljómsveitarstjóri
Eva Ollikainen
Leikstjóri
Julia Burbach
Leikstjóri
Tal Rosner
Myndbandshönnuður
Tal Rosner
| Hlutverk
Brünnhilde
Irene Theorin
Siegmund
Christopher Ventris
Fricka
Christa Mayer
Sieglinde
Claire Rutter
Wotan
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Hunding
Kristinn Sigmundssson
Helmwige
Lilja Guðmundsdóttir
Gerhilde
Sigrún Pálmadóttir
Ortlinde
Margrét Hrafnsdóttir
Waltraute
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Siegrune
Agnes Thorsteins
Roβweiβe
Guja Sandholt
Grimgerde
Hildigunnur Einarsdóttir
Schwertleite
Svanhildur Rósa Pálmadóttir
| Aðrar sýningar