Íslenska óperan heldur til Búdapest með Brothers

25. júní 2019

Íslensku óperunni var boðið að opna hina virtu Armel óperuhátíð í Búdapest sem hefst þann 2. júlí n.k. Það er óperan Brothers eftir Daníel Bjarnason sem er opnunaratriði hátíðarinnar en verkið var frumsýnt á Íslandi þann 9. júní 2018 og hefur sópað að sér verðlaunum.

Hópurinn hélt af stað til Búdapest í gær og er fyrsti æfingadagurinn í dag og mikil spenna í hópnum. Sýningin er í Mupa leikhúsinu í Búdapest og er nær uppselt á viðburðinn. 

Hér er hægt að lesa nánar um hátíðina og uppfærsluna.

Eftir Elfa Sif Logadóttir 9. maí 2023
Söngvur­um í óper­unni Madama Butterfly var ákaft fagnað í Hörpu á lokasýningunni síðastliðinn laugardag. Þá sér­stak­lega söng­kon­unni Hye-Youn Lee, sem fór með aðal­hlut­verk Cio-Cio San í sýn­ing­unni. Sýningin fékk frábærar viðtökur meðal gagrýnanda og áhorfenda sem sáu sýninguna. Íslenska óperan þakkar öllum kærlega fyrir komuna.
Eftir Elfa Sif Logadóttir 28. nóvember 2022
Það vantaði ekki upp á stemn­ing­una og voru tón­leika­gest­irn­ir hver öðrum glæsi­legri.
ALLAR FRÉTTIR