Æfingar að hefjast á Brúðkaupinu

29. júlí 2019

Það styttist í að sviðsæfingar hefjist á haustsýningu Íslensku óperunnar - Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart sem frumsýnd verður þann 7. september n.k. í Þjóðleikhúsinu. 

Þessa vikuna eru einsöngvararnir að æfa hlutverk sín með raddþjálfa (repetiteur) sem fer yfir tónlistina með hverjum fyrir sig áður en kemur að sviðsæfingum. Þær hefjast þriðjudaginn 6. ágúst á stóra sviði Þjóðleikhússins. 

Eftir Elfa Sif Logadóttir 9. maí 2023
Söngvur­um í óper­unni Madama Butterfly var ákaft fagnað í Hörpu á lokasýningunni síðastliðinn laugardag. Þá sér­stak­lega söng­kon­unni Hye-Youn Lee, sem fór með aðal­hlut­verk Cio-Cio San í sýn­ing­unni. Sýningin fékk frábærar viðtökur meðal gagrýnanda og áhorfenda sem sáu sýninguna. Íslenska óperan þakkar öllum kærlega fyrir komuna.
Eftir Elfa Sif Logadóttir 28. nóvember 2022
Það vantaði ekki upp á stemn­ing­una og voru tón­leika­gest­irn­ir hver öðrum glæsi­legri.
ALLAR FRÉTTIR