Valkyrjunni eftir Wagner aflýst

Vegna heimsfaraldursins og afleiðingum hans hefur fyrirhugaðri uppfærslu á Valkyrjunni eftir Wagner verið aflýst. Uppfærslan var fyrirhuguð í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík og átti að fara fram í Hörpu 24. og 26. febrúar 2022. Staða faraldursins hér heima og erlendis gerir það að verkum að ekki er mögulegt að sýna óperuna við þessar aðstæður enda um mjög fjölmenna og umfangsmikla uppfærslu að ræða þar sem listamenn koma víða að.
Við gerum okkur vonir um að hægt verði að sýna óperuna, sem þegar hefur verið frestað í tvígang, við annað tækifæri í framtíðinni, en það mun þá verða tilkynnt sérstaklega.
Allir aðgöngumiðar verða endurgreiddir að fullu og endurgreiðast sjálfkrafa hafi þeir verið greiddir með greiðslukorti. Ef miðar voru greiddir með öðrum hætti, eða ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlega hafið samband við miðasölu Hörpu á netfangið midasala@harpa.is
