Miðar á Brúðkaup Fígarós rjúka út og nær uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar
22. ágúst 2019

Mikill áhugi er hjá gestum að tryggja sér miða á Brúðakaup Fígarós sem frumsýnd verður þann 7. september nk í Þjóðleikhúsinu. Nú þegar er orðið uppselt á frumsýninguna og örfá sæti laus á 2. sýninguna. Það eru margir forvitnir að fá að upplifa þetta meistaraverk Mozarts í Þjóðleikhúsinu með glæsilegum söngvurum, listrænu teymi og hljómsveit Íslensku óperunnar.
Miðasalan er í fullum gangi áfram - hægt er að kaupa miða HÉR

Söngvurum í óperunni Madama Butterfly var ákaft fagnað í Hörpu á lokasýningunni síðastliðinn laugardag. Þá sérstaklega söngkonunni Hye-Youn Lee, sem fór með aðalhlutverk Cio-Cio San í sýningunni. Sýningin fékk frábærar viðtökur meðal gagrýnanda og áhorfenda sem sáu sýninguna. Íslenska óperan þakkar öllum kærlega fyrir komuna.