Aría dagsins og eldri uppfærslur á opera.is

Íslenska óperan í samstarfi við mbl.is vill stytta landsmönnum stundir og gleðja á erfiðum tímum með því að færa ykkur aríu dagsins í flutningi íslenskra söngvara við píanóleik Bjarna Frímanns.
Það er Dísella Lárusdóttir sópransöngkona sem flytur fyrstu aríu dagsins við píanóleik Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Arían verður birt á mbl.is í dag, þriðjudaginn 24. mars 2020.
Íslenska óperan mun líka frá og með deginum í dag opna gullkistu sína og deila völdum eldri uppfærslum með landsmönnum í gegnum heimasíðuna. Fyrsta uppfærslan sem verður aðgengileg er óperan Pagliacci sem sett var upp árið 1990 í Gamla bíói og var upptakan gerða þann 23. febrúar 1990.
Hljómsveitarstjóri: David Angus
Leikstjóri: Basil Coleman
Leikmynd: Nicolai Dragan
Búningar: Alexander Vassiliev
Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason
Hlutverkaskipan
Canio: Garðar Cortes
Nedda: Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Tonio: Keith Reed
Silvio: Simon Keenlyside
Harlequin: Sigurður Björnsson
Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar
Konsertmeistari: Zbigniew Dubik
