|
Óperan sem Íslenska óperan fćrir upp á komandi haustmisseri er engin önnur en Rigoletto eftir Giuseppe Verdi og verđur frumsýning laugardagskvöldiđ 9. október kl. 20. Ţetta áhrifamikla og hádramatíska meistaraverk er ein af ţekktustu óperum sögunnar og er reglulega fćrđ upp í flestum óperuhúsum veraldar. Í verkinu koma saman ástir, valdabarátta og örlög í ćsispennandi fléttu, sem römmuđ er inn af hrífandi tónlist meistara Verdis og inniheldur međal annars hinar ţekktu aríur „La donne e mobile“, „Questa o quella“ og „Caro nome“, ađ ógleymdum kvartettinum „Bella figlia de...ll’amore“.
Ađalsöngvararnir í verkinu eru íslenskum óperuunnendum ađ góđu kunnir, en ţeir eru Ólafur Kjartan Sigurđarson sem Rigoletto, en hann hefur haslađ sér völl sem einn fremsti óperusöngvari Íslands á erlendri grundu undanfarin misseri, Ţóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friđgeir Valdimarsson sem Hertoginn af Mantua.
|