Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200

 Vinafélagið
Hvað er Vinafélag Íslensku óperunnar?
Vildarkjör fyrir Vinafélaga
DVD-sýningar á óperum
Námskeið
Stjórn Vinafélagsins
Fréttir af Vinafélaginu

 Skrá sig á póstlista

 Vissir þú þetta?

Að Rigoletto er er 9. mest flutta ópera í Norður-Ameríku samkvæmt samtökunum Opera America.

 

 

Ef svara ætti spurningunni hér að ofan í fáum orðum gæti svarið hljóðað á þessa leið:

„Vinafélag Íslensku óperunnar er félag áhugamanna um óperutónlist. Megintilgangur þess er að styðja og styrkja starf Óperunnar með fræðslu og kynningu á óperulist með hliðsjón af verkefnum Óperunnar og í samstarfi við hana, en einnig að vinna að því að auka almennan áhuga og þekkingu á óperulist á Íslandi. Félagsmenn eru nú um 740 talsins.“  Lengri útgáfan fylgir hér á eftir:

Vinafélag Íslensku óperunnar er ungt félag en byggir þó á gömlum merg. Fyrirrennari þess var Styrktarfélag Íslensku óperunnar, sem stofnað var 1989 en það var lagt niður árið 2000 og Vinafélag Íslensku óperunnar stofnað á grunni þess. Þessar breytingar héldust í hendur við breytingar sem gerðar voru á skipulagi og stjórnun Íslensku óperunnar á sama tíma. Félagar í gamla Styrktarfélaginu urðu sjálfkrafa félagar í Vinafélaginu við stofnun þess.

Eftir skipulagsbreytingarnar er Vinafélagið sjálfstætt og óháð félag, sem ekki ber ábyrgð á rekstri Íslensku óperunnar eins og Styrktarfélagið gerði. Megintilgangur Vinafélagsins er að styðja og styrkja starf Óperunnar með fræðslu og kynningu á óperulist með hliðsjón af verkefnum Óperunnar og í samstarfi við hana, en einnig að vinna að því að auka almennan áhuga og þekkingu á óperulist á Íslandi.

Vinafélagið leggur áherslu á fjölbreytt fræðslustarf fyrir félagsmenn og almenning, auk þess sem samið hefur verið við Íslensku óperuna og fleiri aðila um sérstök vildarkjör fyrir félagsmenn .

Íslenska óperan hefur lýst því yfir að Vinafélagið sé mikilvægasti markhópurinn fyrir starfsemi Óperunnar og að allt kapp verði lagt á sem mest og best samstarf við félagið.

Viltu ganga í félagið eða afla þér nánari upplýsinga?

Þá getur þú sent tölvupóst eða hringt í síma 511 6400.




 Leita
 

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Miðasala á netinu
 
Facebook
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.