Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200

 Óperan
Stjórnir og starfsfólk
Kór Íslensku óperunnar
Hljómsveit Íslensku óperunnar
Hel - ný íslensk ópera á Listahátíð
Myndir úr sýningum
Dagskrá síðustu missera:
Aida - ástarþríhyrningurinn
Ástardrykkurinn
Don Djammstaff
Wagner og Wesendonck
Óperuperlur
Janis 27
Þjóðlagaveisla - Söngbók Engel Lund
Cavalleria Rusticana og Pagliacci - haust 2008
La traviata - Vor 2008
Cosi fan tutte - Óperustúdíó 2008
Tónleikar Sir Willard White - Vor 2008
Saga Íslensku óperunnar
Fyrri verkefni Íslensku óperunnar
Í fyrsta skipti í Óperunni - Þetta er gott að vita
Heimilisfang og kennitala Íslensku óperunnar

 Vissir þú þetta?

Að José Carreras, einn þekktasti óperusöngvari heims söng „La donna e mobile" í spænska ríkisútvarpinu í desember árið 1954, þá aðeins átta ára gamall...

 

DON DJAMMSTAFF

Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík
í samvinnu við Íslensku óperuna

fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20 og laugardaginn 6. febrúar kl. 14

Nemendaópera Söngskólans sýnir óperuna Don Djammstaff í samvinnu við Íslensku óperuna. Óperan er samsett úr 17 atriðum úr 14 óperum eftir 9 tónskáld og sungin á 4 tungumálum. Hún fjallar um ævintýri vampírunnar Don Djammstaff, sem er yfir sig ástfanginn af mennskri konu, Paminu, og setur allt í uppnám til að ná ástum hennar. Inn í framvinduna fléttast síðan hefndir kvenna og vald örlaganna.

Alls taka 31 af nemendum Óperudeildar Söngskólans í Reykjavík þátt í sýningunni og bregða sér m.a. í gervi vampíra, verndarengla og norna. Anton Steingruber og Hrönn Þráinsdóttir hafa annast tónlistarundirbúning og Hrönn leikur undir á píanó. Leikstjóri sýningarinnar og höfundur dansa er Sibylle Köll.

Sala aðgöngumiða hefst fimmtudaginn 28. janúar og verða miðar seldir í miðasölu Íslensku óperunnar, sem er opin alla daga kl. 14-18, en svarað er í síma frá kl. 10 alla virka daga. Sími miðasölu er 511- 4200 og netfangið er midasala@opera.is. Einnig er hægt að kaupa miða á netmiðasölunni á www.opera.is.




 Leita
 

Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.