|
ÍSLENSKA ÓPERAN FLYTUR Í TÓNLISTARHÚSIÐ 2011

Til stendur að Íslenska óperan flytji starfsemi sína úr húsinu við Ingólfsstræti í framtíðinni og í Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn. Er nú unnið að samningum þess efnis milli stjórnar Íslensku óperunnar og eigenda Tónlistarhússins, þ.e. íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar. Gert er ráð fyrir að flutt verði inn í húsið árið 2011.
Eigendur Tónlistar-og ráðstefnuhússins nýja við Reykjavíkurhöfn, þe.íslenska ríkið og Reykjavíkurborg, fóru þess á leit við forráðamenn Íslensku óperunnar í vor að kannaðir yrðu möguleikar á að Óperan flytti starfsemi sína í Tónlistarhúsið
Stjórn Íslensku óperunnar samþykkti að hefja viðræður þessa efnis með þeim skilyrðum að vissum grunnþörfum til óperuflutnings yrði fullnægt, en eins og kunnugt er, var Tónlistarhúsið upphaflega ekki hannað til óperuflutnings né fyrir aðrar sviðslistir.
Lagði Óperan fram þarfagreiningu, sem eigendur hússins hafa komið til móts við eftir föngum og eru ráðgerðar nokkrar breytingar á sviði aðalsalarins með það í huga að auðveldlega megi flytja þar óperur. Áður hafði verið ákveðið að hljómsveitargryfja yrði í aðalsalnum, sem að sjálfsögðu skiptir sköpum varðandi óperusýningar. Gert er ráð fyrir góðum ljósabúnaði til leiklýsingar og stefnt að hljómburði eins og best verður á kosið.
Íslenska óperan fær aðgang að ágætri æfingaraðstöðu, bæði æfingarsal og stökum herbergjum; þörfum á búningsherbergjum og aðstöðu listamanna verður fullnægt með óperu-og leiksýningar fyrir augum og innréttaðar verða sérstakar vistarverur fyrir hárgreiðslu-og förðunaraðstöðu. Þá verða í húsinu rými fyrir saumstofu Óperunnar og geymslu leikmuna, sem tengjast sýningum. Óperan mun flytja skrifstofur sínar og alla starfsemi í hið nýja hús.
Gert er ráð fyrir að Óperan hafi aðgang að aðalsal fyrir tvær til þrjár óperusýningar á ári en geti einnig efnt til viðburða og tónleika í minni sölum hússins. Stefnt er að mikilli og góðri samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands en húsið verður jafnframt heimili hennar. Ljóst er að
rekstraforsendur Óperunnar breytast mjög til batnaðar við að komast í stærra sýningarhúsnæði en til þessa hefur Íslenska óperan þurft að greiða verulegar upphæðir með hverju sýningarkvöldi vegna smæðar salarins, þótt uppselt sé á sýningarnar.
Samningaviðræður um endanlega útfæslu og leigukjör standa nú yfir milli Íslensku óperunnar og eigenda Tónlistar-og ráðstefnuhússins en gert er ráð fyrir að húsið verði opnað árið 2011. |