|
JANIS 27
Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í nýju verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Janis 27. Verkið byggir á stuttu en litríku lífslaupi söngkonunnar, sem lést af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970.
Hrá og innblásin tónlist Joplin skipar stóran sess í verkinu og bregður fjögurra manna rokkband undir stjórn Jóns Ólafssonar í hlutverk hinna nokkurra hljómsveita Janisar Joplin á ferlinum.
Verkið er skrifað fyrir tvær söng- og leikkonur, og túlka hinar góðkunnu Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir söngkonuna í sýningunni í söng og tali, í leikstjórn reynsluboltans Sigurðar Sigurjónssonar. Leikmynd hannar Finnur Arnar Arnarsson, búninga hannar Þórunn E. Sveinsdóttir og lýsingu Páll Ragnarsson.
Ekki missa af því þegar rokkið heldur innreið sína í Óperuna!
Næstu sýningar: 10. janúar, 23. janúar og 31. janúar 2009 kl. 20. |