Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200

 Óperan
Stjórnir og starfsfólk
Kór Íslensku óperunnar
Hel - ný íslensk ópera á Listahátíð
Hljómsveit Íslensku óperunnar
Myndir úr sýningum
Dagskrá síðustu missera:
Aida - ástarþríhyrningurinn
Ástardrykkurinn
Don Djammstaff
Wagner og Wesendonck
Óperuperlur
Janis 27
Þjóðlagaveisla - Söngbók Engel Lund
Cavalleria Rusticana og Pagliacci - haust 2008
 :::: Listræn forysta
 :::: Söngvarar
 :::: Sýningadagar
 :::: Um tónskáldin
 :::: Söguþráður sýningarinnar
La traviata - Vor 2008
Cosi fan tutte - Óperustúdíó 2008
Tónleikar Sir Willard White - Vor 2008
Saga Íslensku óperunnar
Fyrri verkefni Íslensku óperunnar
Í fyrsta skipti í Óperunni - Þetta er gott að vita
Heimilisfang og kennitala Íslensku óperunnar

 Vissir þú þetta?
Samkvæmt ítalskri hefð hrópa óperugestir Bravo, Brava, Bravi eða Brave, allt eftir fjölda og kynferði þeirra söngvara sem verið er að fagna hverju sinni ...
 

CAVALLERIA RUSTICANA OG PAGLIACCI 

Höfundar: Pietro Mascagni and Ruggiero Leoncavallo

Cavalleria Rusticana og Pagliacci verða sýndar í fyrsta skipti saman í Íslensku óperunni í haust, en í hugum margra eru þessar tvær óperur tengdar sterkum böndum, og því hefur skapast ákveðin hefð fyrir því að þær séu sýndar saman.

Hér er um að ræða tvær einþáttungsóperur, þar sem daglegt líf fólks; harmur þess og gleði, eru í forgrunni. Munurinn á leikhúsi og lífi er tekinn til rækilegrar skoðunar í þessari uppfærslu og í raun mætti segja að hér fái óperugestir að upplifa leikhús í leikhúsi í leikhúsi!

Þessi glæsilega uppfærsla er skipuð einvalaliði úr íslenska óperu- og leikhúsheiminum, en hér leikstýrir Sveinn Einarsson nokkrum af fremstu söngvurum þjóðarinnar, þar á meðal Kristjáni Jóhannssyni tenórsöngvara sem syngur í fyrsta sinn á glæsilegum ferli sínum í Íslensku óperunni. Aðrir söngvarar í sýningunni eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Elín Ósk Óskarsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Tómas Tómasson, Alina Dubik, Sesselja Kristjánsdóttir, Sólrún Bragadóttir, Alex Ashworth og Eyjólfur Eyjólfsson.

Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, en aðrir listrænir stjórnendur eru Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, leikmyndahönnuður, Helga Björnsson, búningahönnuður og Páll Ragnarsson, ljósahönnuður.

Hér er um að ræða sýningu sem enginn óperuunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Tryggðu þér miða með því að smella hér!




 Leita
 

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.