|
Íslenska óperan og Listaháskóli Íslands starfa saman að Óperustúdíóí annað árið í röð og að þessu sinni er það óperan Apótekarinn eftir Haydn sem verður frumsýnd í Íslensku óperunni 29. apríl n.k. en sýningar standa til 10. maí. Alls verða 5 sýningar á Apótekaranum í Óperunni og er aðgangur ókeypis.
Íslenska óperan og Íslandsbanki gerðu með sér samstarfssamning í haust sem felur í sér að Íslandsbanki kostar verkefnið að hluta til. Myndin hér til hægri er af aðstandendum Óperustúdíósins við undirritun samstarfssamningsins. Þáttakendur í Óperustúdíóínu eru nemendur í tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu og hafa krakkarnir sótt námskeið í leiktækni hjá Kára Halldóri í Listaháskólanum að undanförnu. Í framhaldi af því taka nú við æfingar í Óperunni undir handleiðslu Ingólfs Níels Árnasonar leikstjóra og Kurt Kopeckys hljómsveitarastjóra. Verkefnið er hluti af Vorhátíð Listaháskólans en Útskriftartónleikar Listaháskólans eru samtímis sýningum óperunnar eða frá 1.apríl – 9. maí. Útskriftarsýning nema úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ opnar einnig 7. maí.
Bjarni Daníelsson Óperustjóri segir tilgang Óperustúdíósins tvíþættan; „Annars vegar er ætlunin að veita tónlistarnemum og þá sérstaklega söngnemendum, raunhæfa reynslu af starfi í óperuhúsi.” Hins vegar segir Bjarni að ætlunin með Óperustúdíóinu sé að setja upp og kynna lítið þekktar eða nýjar og framandi óperur sem ólíklegt er að yrðu settar á svið að öðrum kosti hér á landi. „Það skiptir ekki höfuðmáli fyrir reynslu þátttakenda hvaða óperu er verið að sviðsetja, en það skiptir máli fyrir framtíð óperulistar á Íslandi að nota þetta tækifæri til kynningar á lítt þekktum verkum óperubókmenntanna.”
Apótekarinn er gamanópera um ást og afbrýðisemi. Grilletta er ung og efnuð stúlka, skjólstæðingur gamla apótekarans Sempronio. Hann hefur lítinn áhuga á apótekarastarfinu og kysi helst sjálfur að kvænast Grillettu, en hún á sér tvo vonbiðla. Þeir eru hinn ríki Volpino og ungi pilturinn Mengone, sem starfar í apótekinu til að vera nálægt sinni heittelskuðu þó hann kunni lítt til verka. Eftir mikinn misskilning og fjaðrafok sigrar ástin að lokum og allt fellur í ljúfa löð.
Með helstu hlutverk fara: Sempronio, Þorvaldur Þorvaldsson. Grilletta, Jóna Fanney Svavarsdóttir og Ólafía Línberg Jensdóttir. Volpino, Guðbjörg Sandholt og Sólveig Samúelsdóttir. Mengone, Erlendur Elvarsson. Kórinn skipa 5 stúlkur og hljómsveitina 17 hljóðfæraleikarar.
|