|
UM ÍSLENSKU ÓPERUNA

Íslenska óperan setur reglulega upp spennandi óperusýningar, þar sem íslenskt tónlistar- og leikhúsfólk er í forgrunni. Meðal sýninga undanfarinna missera má nefna La Bohéme vorið 2012, Töfraflautuna - fyrstu óperusýninguna í Hörpu - árið 2011, Rigoletto árið 2010, Ástardrykkinn árið 2009 og La traviata árið 2008.
Íslenska óperan var formlega stofnuð undir lok áttunda áratugarins og hafði frá árinu 1982 aðsetur sitt í Gamla bíói við Ingólfsstræti, en flutti á vormánuðum ársins 2011 í tónlistarhúsið Hörpu. Á hinum rúmu þrjátíu árum sem liðin eru frá stofnun hennar hefur hún sett upp meira en 60 óperusýningar, allt frá hinum klassísku óperum Mozarts og Verdis til glænýrra verka íslenskra samtímatónskálda.
Íslenska óperan leggur áherslu á að nýta sér krafta íslenskra listamanna úr tónlistar- og leikhúsheiminum við sviðssetningu sýninga sinna, en erlendir listamenn hafa jafnframt verið reglulegir þátttakendur. Flestir af fremstu söngvurum Íslands hafa tekið þátt í uppfærslum hennar, og hafa margir þeirra íslensku söngvara sem stigu sín fyrstu skref í óperuheiminum á fjölum Íslensku óperunnar síðar orðið þekktir og eftirsóttir söngvarar í hinum alþjóðlega óperuheimi. |