 |
|
Sýningum lokið
Dokaðu við er ný íslensk ópera fyrir unglinga,12-15 ára, byggð á ljóðum þriggja skálda: Theodóru Thoroddsen (Þula), Þorsteins frá Hamri (úr ýmsum ljóðabókum) og Péturs Gunnarssonar (Splunkunýr dagur).
Í óperunni er rakin þroskasaga drengs. Hann fæddist í þjóðsögu en ferðast í gegnum margbrotið landið til nútímans. Þá er hann orðinn að ungum manni og kynnist ástinni. Lítill drengur með selsaugu fæðist í borginni, í nútímanum, og ungi maðurinn ákveður að leggja sitt af mörkum til að heimurinn geti litið bjartari daga.
Tónlist: Kjartan Ólafsson Handrit, leikmynd, búningar og brúður: Messíana Tómasdóttir Leikstjórn: Messíana Tómasdóttir Dansar: Aino Freyja Järvelä Lýsing: David Walters
Flytjendur Drengurinn, ungi maðurinn: Garðar Thór Cortes tenór Móðirin, rödd ungu stúlkunnar: Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran Dansari: Aino Freyja Järvelä Hljóðfæraleikarar á sviði: Kjartan Ólafsson, hljómborð; Kolbeinn Bjarnason, flauta; Stefán Örn Arnarson, selló
Ljóðin og tónlistin í sýningunni eru notuð sem kennsluefni í tónmennt á vegum Námsgagnastofnunar fyrir mið- og unglingastig.
Sýningar fyrir skólahópa í Íslensku óperunni:
miðv. 12. nóv. kl. 11.15 fim. 13. nóv. kl. 10.00 og 11.15 miðv. 19. nóv. kl. 9.45 og 11.15 fim. 20. nóv. kl. 9.45 og 11.15
Miðaverð: Nemendur: 500 kr., ókeypis fyrir kennara.
Ein almenn sýning verður í Óperunni: sunnudaginn 16. nóvember kl. 16.00 Miðaverð: Börn: 1.200 kr., fullorðnir: 1.700 kr.
Óperan tekur um 50 mínútur í flutningi.
Sími miðasölu: 511 4200
Nánari upplýsingar hjá Messíönu Tómasdóttur í símum 551 8959 og 891 8959 eða tölvupósti messiana@centrum.is
Óperan er samstarfsverkefni Strengjaleikhússins og Íslensku óperunnar.
Menningarborgarsjóður og Menningarsjóður Reykjavíkurborgar styrkja verkefnið.
|