Næstu hádegistónleikar Íslensku óperunnar verða þriðjudaginn 26. febrúar kl. 12:15 í Norðurljósasal Hörpu. Þá munu Gréta Hergils, sópran og Ágúst Ólafsson, baritón, syngja atriði úr óperu Donizettis Lucia di Lammermoor. Píanóleikari í tónleikum verður Antonía Hevesi.
Gréta Hergils Valdimarsdóttir stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Signýjar Sæmundsdóttur og Iwonu Aspar Jagla. Hún stundaði einnig nám við söngskólann Hjartans mál þar sem kennari hennar var Björk Jónsdóttir.
Meðal uppsetninga sem Gréta hefur tekið þátt í þátt í hjá Íslensku óperunni eru Hollendingurinn fljúgandi, Macbeth, Brúðkaup Fígarós, Sweeney Todd, The Rake‘s Progress, Cavalleria Rusticana, Pagliacci og Rigoletto. Núna síðast söng hún hlutverk Inesar í Il Trovatore.
Ágúst Ólafsson stundaði nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar hjá Eiði Á. Gunnarssyni og síðan við Síbelíusar-akademíuna hjá Jorma Hynninen og Sauli Tiilikainen. Ágúst sótti meistaranámskeið hjá Elísabetu Schwarzkopf og um tíma reglulega einkatíma hjá henni. Hlutverk Ágústs hjá Íslensku óperunni til þessa eru titilhlutverkið í Sweeney Todd, Skugginn í The Rake‘s Progress, Harlekin í Ariadne á Naxos, Douphol barón í La traviata, Belcore í Ástardrykknum, Marullo í Rigoletto, Papagenó í Töfraflautunni og Marcello í La Bohème auk þess sem hann var einn söngvaranna í Perluportinu og Óperuperlum.
|