Il Trovatore

 2012-2013
IL TROVATORE
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Miðasala

 Skrá sig á póstlista
 

HÁDEGISTÓNLEIKAR 29. JANÚAR KL. 12.15 Senda greinina Senda Prenta textann


Fyrstu mánaðarlegu hádegistónleikar Íslensku óperunnar á þessu ári verða nk. þriðjudag, 29. janúar kl.12:15 í Norðurljósum. Það er Gunnar Guðbjörnsson tenór, sem ríður á vaðið undir yfirskriftinni Í HIRÐ HANS HÁTIGNAR - úr hugarfylgsni konunga, riddara og annarra hirðmanna.

Gunnar hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim. Hann var fastráðinn við óperuhúsin í Wiesbaden, Lyon, Staatsoper í Berlín og í Freiburg á árunum 1990-2010. Auk þess hefur hann komið fram við mörg önnur af helstu óperuhúsum Evrópu. Meðal þeirra má nefna Ríkisóperurnar í München og Vín, Bastilluóperuna í París, Konunglegu óperuna í Madrid og óperuhúsin í Palermo, Bologna, Toulouse, Marseille, Hamborg, Köln, Gautaborg og Lissabon.

Á tónleikunum syngur Gunnar aríur úr óperunum Idomenoe eftir Mozart, Macbeth eftir Verdi og óperum Wagners Meistarasöngvurunum í Nürnberg og Lohengrin. Píanóleikari er Antonía Hevesi. Hádegistónleikarnir verða í Norðurljósasal Hörpu og er aðgangur ókeypis.

Gunnar hefur komið fram með mörgum þekktum sinfóníuhljómsveitum en þar ber að nefna Royal Philharmonic í London, Fílharmóníusveit Berlínar, Chicago Symphony Orchestra, Orchestre Philharmonique de Radio France, Ensemble Modern og Göteborgs Symfoniker.

Fjöldi upptakna liggur eftir Gunnar en hann hefur m.a. sungið fyrir hljómplötufyrirtæki á borð við Philips, Bis og Teldec.

Síðari ár hefur hann einbeitt sér að dramatískari hlutverkum á borð við Siegfried í samnefndri óperu Wagners, Stolzing í Meistarsöngvurunum eftir sama tónskáld en einnig hefur hann sungið Idomeneo eftir Mozart og hlutverk Herodesar í Salome eftir Strauss. Gunnar hefur starfað sem blaðamaður á netmiðlunum Pressunni og Smugunni, stundað söngkennslu og síðastliðið sumar lauk hann MA gráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.




 Leita
 

 2012-2013
SÓPRANAR SYNGJA BELLINI OG PUCCINI
HELGA RÓS INDRIÐADÓTTIR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM
ÓPERUTÓNLEIKAR Í KALDALÓNI 23. MARS KL 20
ELSA WAAGE SYNGUR WESENDONCK SÖNGVA
ÓP-HÓPURINN SÝNIR SYSTIR ANGELICA
GISSUR PÁLL OG HULDA BJÖRK HLUTU TÓNLISTARVERÐLAUNIN!
GRÉTA OG ÁGÚST Í HÁDEGINU 26. FEBRÚAR
METRÓPÓLITAN OG ROYAL OPERA HOUSE
JÓLARÓ Á ÞORLÁKSMESSU KL. 17-18
SESSELJA SYNGUR SÖNGVA PÁLÍNU 18. DESEMBER KL. 12.15
ÁTTA SÖNGVARAR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR TILNEFNDIR!
THOMAS HAMPSON Í HÖRPU 6. FEBRÚAR 2013
ÓPERUFERÐ TIL NEW YORK 20.-25. FEBRÚAR 2013

Miðasalan á netinu
 
MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
TM-software sér um gerð Óperuvefsins
 
Landsvirkjun er eitt af öflugustu samstarfsfyrirtækjum Íslensku óperunnar
 
 
Íslenska óperan - Hörpu - Austurbakka 2 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 528 5050 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@harpa.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.