  
Á Þorláksmessu verður hin hefðbundna „Jólaró" Íslensku óperunnar haldin í anddyri Hörpu kl. 17-18. Antonía Hevesi, píanóleikari Íslensku óperunnar, fær til liðs við sig góða gesti úr íslenska söngheiminum, þar á meðal söngvara sem tekið hafa þátt í sýningum Óperunnar á liðnum misserum. Þeirra á meðal verða: Elsa Waage, Auður Gunnarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttir, Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Edda Austmann, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Erla Björg Káradóttir og fleiri. Flutt verða lög og samsöngvar úr heimi bæði jólatónlistar og óperutónlistar.
Gert er ráð fyrir að gestir geti komið og farið meðan á söngstundinni stendur, en hún fer fram í anddyri Hörpu. Veitingastaðirnir í Hörpu, verslanirnar 12 Tónar og Epal og miðasala Hörpu verða ennfremur opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis.
Þorláksmessa var um árabil haldin hátíðleg í Íslensku óperunni í Gamla bíói. Verið hjartanlega velkomin í nýju húsakynnin okkar í Hörpu og hlýðið á hugljúfa tónlist á hinni erilsömu en þó skemmtilegu Þorláksmessu.
|