Hinir mánađarlegu hádegistónleikar Íslensku óperunnar í Hörpu nk. ţriđjudag 18.des. kl.12:15 verđa ađ ţessu sinni helgađir tónskáldinu og mezzósópransöngkonunni Pauline Viardot, sem ţykir ein merkilegasta söng-og tónlistarkona 19.aldarinnar. Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran og Antonía Hevesi píanóleikari flytja annars vegar nokkur sönglög eftir Pauline og hinsvegar frćgar óperuaríur, sem sérstaklega voru samdar fyrir hana.
Hádegistónleikarnir verđa í Norđurljósasal Hörpu og er ađgangur ókeypis.
Pauline Viardot ( 1821-1910 ) lćrđi píanóleik hjá Franz Liszt og hafđi mikil áhrif á tónlistar-og listalíf Evrópu á 19.öld. Hún samdi yfir hundrađ ljóđ, eina óperu, fjórar óperettur, fjölmörg píanóverk auk fiđlutónlistar. Međal náinna vina hennar voru tónskáldin Chopin, Clara Schumann, Brahms,Gounod og Berlioz. Sömuleiđis rithöfundarnir Alfred de Musset, George Sand og ekki síst rússneski rithöfundurinn Ivan Turgenev. Hún giftist ađ vísu óperustjóranum Louis Viardot og átti međ honum ţrjú börn en var engu ađ síđur ástkona Turgenevs, sem var heimilisvinur ţeirra hjóna í yfir 40 ár.
Mörg verk voru sérstaklega samin fyrir Pauline Viardot eins og Alt Rapsodia Brahms eđa tileinkuđ henni eins og óperan Samson og Dalila eftir Saint-Saëns. Schumann, Gounod og Fauré sömdu allir verk fyrir hana.
Hinn glćsilegi veitingastađur Kolabrautin á fjórđu hćđ Hörpu, býđur tónleikagestum ađ panta mat fyrir tónleikana sem verđur svo tilbúinn á veitingastađnum strax ađ ţeim loknum. Réttur dagsins er pönnusteiktur lax međ smćlki kartöflum, nćpu, rauđlauk og skelfisksósu. Verđ á hádegisverđinum er 2.490 kr. og verđa ţjónar frá Kolabrautinni viđ innganginn á tónleikum og taka viđ pöntunum.
|