Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir Óperuferð til New York 20.-25. febrúar í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Verdis og Wagners. Farið verður á eftirfarandi sýningar í Metropolitan-óperunni:
Parsifal eftir Richard Wagner. Stjórnandi er Daniele Gatti og í aðalhlutverkum eru Jonas Kaufmann, Katarina Dalayman, Peter Mattei, Evgeny Nikitin og René Pape. Don Carlo eftir Giuseppe Verdi. Stjórnandi er Lorin Maazel og í aðalhlutverkum eru Ramón Vargas, Barbara Frittoli, Anna Smirnova, Dmitri Hvorostovsky, Ferruccio Furlanetto og Eric Halfvarson. Carmen eftir Georges Bizet. Stjórnandi er Michele Mariotti og í aðalhlutverkum eru Anita Rachvelishvili, Nikolai Schukoff, Ekaterina Scherbachenko og Teddy Tahu Rhodes.
Enn fremur verður boðið upp á aðra menningartengda viðburði. Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku óperunnar, og Edda Jónasdóttir, leiðsögumaður. Skráning hefst mánudaginn 12. nóvember en einungis 40 sæti eru í boði.
Edda Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar og annast skráningu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á edda@eric.is eða hringið í síma 848-3890.
|