Uppfærsla Íslensku óperunnar á Ástardrykknum eftir Donizetti hlaut afbragðsgóðan dóm í heilsíðuumfjöllun í einu virtasta óperutímariti heims, Opera Now, í janúar/febrúar-heftinu árið 2010. Gagnrýnandinn Ingrid Gäfvert kom hingað til lands á frumsýninguna og segir í upphafi greinar sinnar: „Kannski eru erfiðir tímar á Íslandi en opnunarsýning vetrarins hjá þjóðaróperunni var einstaklega skemmtilegur viðburður.“ Gäfvert fer lofsamlegum orðum um alla þætti sviðsetningarinnar, einkum leikstjórn Ágústu Skúladóttur og hljómsveitarstjórn Daníels Bjarnasonar, og hrósar þó sérstaklega íslensku söngvurunum í hástert:
„Garðar Thór Cortes var fullkominn Nemorino, unglegur og hjartanlega einlægur á sviðinu, með ítalskan blæ sem var sérstaklega fallegur í mjúkum, lágværum köflum og sýndi sig vel í hinu gælandi Una furtiva lagrima. Sem Adina passaði Dísella Lárusdóttir fullkomlega við hann í lýrískum yndisleika, peppuðum upp af öruggum og glitrandi háum tónum. Hin svala og sjálförugga ljóska í smart svörtum og fjólubláum fötum var ekki síður tjáningarrík en Cortes og jafnvægið sem þau náðu í leikgleði og hjartasárum var eftirtektarvert. Hinn alþjóðlega þekkti Wagner-barítón, Bjarni Thor Kristinsson, aðlagaði hina kraftmiklu rödd sína vel að sveigjanleikanum sem Dulcamara krefst og hans að því er virðist góðhjartaði karaketer var blandinn Mefistófelískri illkvittni, sem skein gegn um glaðværð hans á skemmtilegan hátt. Sá sem fyllti kvartett aðalsöngvaranna var Ágúst Ólafsson í ógleymanlega fyndinni útfærslu á hinum sjálfsupptekna og yfirboðskennda Belcore.“
|