Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200
 
MARGAR SÓLIR Á LOFTI Senda greinina Senda Prenta textann

Viðtal við Sigrúnu Hjálmtýsdóttur um aðkomu Menningarsjóðs Íslandsbanka að Óperustúdíói Íslensku óperunnar

Annað árið í röð hafa Íslenska óperan og Menningarsjóður Íslandsbanka gert með sér samning vegna Óperustúdíós. Í stjórn sjóðsins situr hin landsþekkta og ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir. Þórir Andri Karlsson ræddi við hana um verkefni sjóðsins.

Óperustúdíóið er vettvangur fyrir ungt listafólk til að starfa í faglegu umhverfi og njóta þeirrar reynslu sem býr í Óperunni. Nemendum tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu var boðið í áheyrnarprufur og voru þátttakendur valdir úr þeim hópi. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við þá tónlistarskóla sem þátttakendurnir stunda nám við.

Næsta verkefni Óperustúdíósins er óperettan Nótt í Feneyjum eftir Johann Strauss. Hún verður frumsýnd 29. mars og verða alls sex sýningar. Þetta er viðamesta verkefni Óperustúdíósins hingað til, þar sem auk einsöngvara og kórs verður stór hljómsveit. Tónlistarnemar koma víða að til að taka þátt. Leikstjóri er Uschi Horner frá Austurríki og hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. 

Diddú segir að fram að þessu hafi tónlistarskólarnir yfirleitt sett upp nemendasýningar til að veita ungu listafólki reynslu, en þær hafi aldrei verið af þessari stærðargráðu. Verkinu er stjórnað af fagfólki á vegum Óperunnar, eins og um venjulega atvinnumannasýningu væri að ræða. „Þetta er ómetanlegur liður í þroskaferli þessa unga fólks sem listamanna og gerir þeim kleift að koma sér á framfæri og hasla sér völl,“ segir Diddú stolt.

Íslandsbanki hefur gegnum árin verið einn af traustustu samstarfsaðilum Íslensku óperunnar. Bankinn hefur í staðinn hlotið góða umfjöllun og komið jákvæðri ímynd á framfæri. „Bankinn hefur séð árangurinn af þessum rausnarskap sínum við Óperuna og það hvetur hann til að vera enn rausnarlegri. Það merkilega er líka að á meðal stóru fyrirtækjanna er komin samkeppni í að koma að kostun góðra málefna,“ segir Diddú. 

Aðspurð um hlutverk Menningarsjóðsins segir Diddú að hann kappkosti að styrkja ungt og upprennandi listafólk. Hefur Diddú sjálf þá ekki þó nokkra yfirsýn yfir landslagið í íslenskum listum? „Jú, og ég get sagt þér að það er ótrúlegt hversu mikið er af hæfileikaríku fólki hérna á Íslandi – nóg til að setja upp margar óperur. Það eru margar sólir á lofti,“ segir Diddú. Ekki er laust við að sólin skíni einmitt úr brosi hennar sjálfrar.




 Leita
 

 Óperublaðið
ÓPERUDAGAR EVRÓPU 2007
ÁVARP FORMANNS VINAFÉLAGS ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
ÁVARP ÓPERUSTJÓRA
SÖGUÞRÁÐUR
ENGLISH SYNOPSIS
AÐSTANDENDUR SÝNINGARINNAR
KYNNING LISTAMANNA
ÖSKUBUSKA Á MILLISTRÍÐSÁRUNUM
HLJÓÐRITANIR Á ÖSKUBUSKU
SUNGIÐ UNDIR FÖLSKU FLAGGI
KANSÓNUR OG ÁSTARDÚETTAR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM
VARÚÐ: MANNÆTUPLANTAN NÁLGAST!
FRÉTTIR AF VINAFÉLAGINU
HLAKKA TIL AÐ HEYRA Í KRISTNI Í RÓMEÓ OG JÚLÍU
VÍNARBORG – BORG TÓNLISTARINNAR
TILBÚINN RAUNVERULEIKI EÐA RAUNVERULEGUR TILBÚNINGUR
SAMSTARFS - OG STYRKTARFYRIRTÆKI
ÓPERUDAGATAL – VORMISSERI 2006
OPERA CALENDAR – SPRING 2006

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.