Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstrćti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miđasala - Sími: 511 4200
 
KYNNING LISTAMANNA Senda greinina Senda Prenta textann

Allt um fólkiđ á bak viđ sýninguna

Kurt Kopecky (hljómsveitarstjóri) er fćddur í Austurríki og hóf píanónám ţar sjö ára gamall. Á árunum 1994-2000 stundađi hann nám í hljómsveitarstjórn viđ Tónlistarháskólann í Vínarborg og lauk ţađan meistaragráđu. Einnig lagđi hann stund á píanómeđleik viđ sama skóla. Hann sótti auk ţess fjölda meistaranámskeiđa í kórstjórn. Á árunum 2000-2003 starfađi hann sem hljómsveitarstjóri, söngţjálfari og ćfingastjóri í Biel-Solothurn leikhúsinu í Sviss og kom ţađan til starfa sem tónlistarstjóri Íslensku óperunnar haustiđ 2003. Kurt Kopecky hefur stjórnađ ýmsum óperuuppfćrslum í Austurríki, Ţýskalandi, Sviss og Finnlandi og einnig komiđ víđa fram sem međleikari á píanó. Hann hefur komiđ fram sem gestastjórnandi međ ýmsum sinfóníuhljómsveitum, t.d. Tonkünstler Orchester í Austurríki, Orquestra Nacional do Porto og sinfóníuhljómsveitunum í Oulu og Kuopio. Í september sl. var hann gestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tvennum tónleikum í Háskólabíói. Kurt stjórnađi uppfćrslu á Werther í Íslensku óperunni haustiđ 2003 og Carmen sem Íslenska óperan setti upp voriđ 2004 á Eskifirđi í samvinnu viđ Óperustúdíó Austurlands. Hann var ađstođarhljómsveitarstjóri í Brúđkaupi Fígarós og hljómsveitarstjóri í Sweeney Todd og Toscu í Íslensku óperunni. Sl. haust stjórnađi hann Tökin hert í Íslensku óperunni.

Paul Suter (leikstjóri)   er Svisslendingur. Hann starfađi sem ađstođarleikstjóri viđ Ríkisleikhúsiđ í Bern, Grand Théâtre de Genéve (m.a međ Maurice Béjart), viđ óperuhúsiđ í Zürich (m.a. međ August Everding og Nikolaus Lehnhoff), viđ óperuna í París og Ríkisóperuna í München. Hann setti upp barnaóperuna Pollicino eftir Hans Werner Henze viđ nemendaleikhús óperuhússins í Zürich. Í leikhúsinu í Biel-Solothurn leikstýrđi hann Ítölsku stúlkunni í Alsír, La traviata, Der Zarewitsch Fra Diavolo og Brottnáminu úr kvennabúrinu, sem hann setti einnig upp í óperunni í Bilbao. Önnur verkefni hans í Bilbao eru Fidelio, Nabucco og Töfraflautan. Viđ óperuna í Metz leikstýrđi hann Hollendingnum fljúgandi og í óperunni í Dublin Rakaranum í Sevilla. Í óperuhúsinu í Zürich leikstýrđi hann frumflutningi á kammeróperu Peter Aderhold Odysseus und der Fremde, sem síđan var einnig sett upp í Cuvillé-Theater í München á óperulistahátíđinni 2001. Á listahátíđinni Ticino Musica Locarno setti hann upp óperuna Il matrimonio segreto eftir Cimarosa. Hjá Zürcher Kammerorchester setti hann upp The Pirate of Penzance eftir Gilbert og Sullivan og í Bremgarten La Périchole eftir Offenbach. 

Anna Margrét Óskarsdóttir (Tisbe) stundađi söngnám viđ Nýja tónlistarskólann hjá Alinu Dubik og útskrifađist ţađan sl. vor. Hún lauk 8. stigs prófi voriđ 2002 og burtfararprófi voriđ 2004 og hélt einsöngstónleika ađ loknum báđum ţessum prófum. Hún lauk síđan einsöngvaraprófi í nóvember 2004. Anna Margrét stundađi einnig píanónám um langt skeiđ, m.a. viđ Nýja tónlistarskólann. Hún hefur komiđ fram sem einsöngvari viđ ýmis tćkifćri, s.s. í óratóríum, viđ kirkjulegar athafnir og á tónleikum.

Bergţór Pálsson (Dandini) stundađi nám viđ Tónlistarskólann í Reykjavík og Indiana University í Bloomington ţar sem hann lauk B.M.- og meistaranámi. Áriđ 1996 lauk hann leiklistarnámi frá Drama Studio London. Af ótal óperuhlutverkum hans má nefna titilhlutverkiđ í Évgení Ónegín, titilhlutverkiđ í Don Giovanni, Almavíva greifa í Brúđkaupi Fígarós og Papagenó í Töfraflautunni, Malatesta í Don Pasquale og Enrico í Lucěa di Lammermoor, Germont í La Traviata, Sharpless í Madama Butterfly og Marcello í La Bohčme. Ţá hefur hann haldiđ fjölda ljóđatónleika, sungiđ einsöng međ Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur, einnig einsöngshlutverk í kórverkum, svo sem í Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratóríu Bachs, Sköpuninni og Árstíđunum eftir Haydn, Sálumessu Mozarts, Messíasi Händels og Elía Mendelssohns. Bergţór hefur tekiđ ţátt í frumflutningi á verkum eftir íslensk tónskáld. Af ţeim má nefna óperurnar Galdra-Loft eftir Jón Ásgeirsson, Stúlkuna í vitanum eftir Ţorkel Sigurbjörnsson og Kalla og sćlgćtisgerđina eftir Hjálmar H. Ragnarsson og hljómsveitarverkiđ Tímann og vatniđ eftir Atla Heimi Sveinsson.

Davíđ Ólafsson (Don Magnifico) stundađi nám viđ Söngskólann í Reykjavík. Ţá hélt hann til framhaldsnáms viđ óperudeild Tónlistarháskólans í Vínarborg. Ađ námi loknu var Davíđ fastráđinn viđ Óperuna í Lübeck í tvö ár, auk ţess sem hann hefur veriđ gestasöngvari viđ óperuhús í Sviss, Austurríki, Ţýskalandi og San Francisco í Bandaríkjunum. Hann hefur haldiđ fjölda tónleika á Íslandi og á meginlandi Evrópu. Međal hlutverka sem Davíđ hefur sungiđ eru Leporello í Don Giovanni, Doktor Bartolo í Brúđkaupi Fígarós, John Falstaff í Kátu konunum frá Windsor og Sarastró í Töfraflautunni. Í Lübeck söng hann hlutverk Don Alfonso í Cosi fan tutte voriđ 2001 og sumariđ 2002 söng hann hlutverk Don Basilio í Rakaranum í Sevilla á óperuhátíđinni í Merzig í Ţýskalandi. Davíđ var fastráđinn viđ Íslensku óperuna 2002-2004 og var fyrsta hlutverk hans ţar Doktor Bartolo í Rakaranum í Sevilla. Voriđ 2003 söng hann hlutverk Mustafa soldáns í Ítölsku stúlkunni í Alsír og hlutverk amtmannsins í Werther haustiđ 2003. Önnur hlutverk hjá Íslensku óperunni eru Doktor Bartolo í Brúđkaupi Fígarós, Turpin dómari í Sweeney Todd og kirkjuvörđur í Toscu.

Einar Th. Guđmundsson (Alidoro) hóf söngnám hjá Eyrúnu Jónasdóttur viđ Tónlistarskóla Rangćinga áriđ 1999. Einar lauk 8. stigs prófi tveimur árum síđar og útskrifađist frá Tónlistarskóla Rangćinga og Söngskólanum í Reykjavík voriđ 2001. Um haustiđ sama ár bauđst honum skólavist viđ Mozarteum tónlistarháskólann í Salzburg í Austurríki viđ bćđi ljóđa- og óperudeild skólans. Kennarar hans ţar voru m.a. Martha Sharp, Wolfgang Holzmair og Margaret Singer. Voriđ 2003 var Einari bođin fastráđning viđ Volksoper, ţjóđaróperuna í Vínarborg, ţar sem hann starfar enn í dag. Međal ţeirra hlutverka sem Einar hefur sungiđ má nefna Dr. Falke í Leđurblökunni, Tristan í Mörthu eftir Flotow, Schaunard í La Bohčme, Alidoro í Öskubusku, Sprecher í Töfraflautunni, Nardo í La Finta Giardiniera og Kruschina í Seldu brúđinni auk fjölda annarra hlutverka. Ţá söng Einar í frumflutningi á óperu Niculaus Schappfl Der kleine Prinz í Salzburg sumariđ 2003 og aftur í München 2004. Á komandi hausti mun Einar syngja hlutverk Leporello í Don Giovanni í Volksoper á sérstakri Mozarthátíđ sem haldin verđur á nćstu leiktíđ í Vínarborg og víđar í tilefni af ţví ađ 250 ár eru frá fćđingu tónskáldsins.

Garđar Thór Cortes (Don Ramiro) hóf söngnám í Söngskólanum í Reykjavík áriđ 1993 hjá Ólöfu Kolbrúnu Harđardóttur og lauk ţađan prófi fjórum árum síđar. Eftir ţađ stundađi hann nám viđ Hochschule für darstellende Kunst und Musik í Vínarborg, sótti einkatíma hjá André Orlowitz í Kaupmannahöfn og stundađi nám viđ óperudeild Konunglega tónlistaháskólans í Lundúnum. Garđar Thór hefur komiđ víđa fram og haldiđ einsöngstónleika, sungiđ í söngleikjum, óratóríum og óperum hér heima, víđsvegar í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum. Á síđastliđnu ári söng Garđar Thór hlutverk Ferrando í Cosi fan tutte međ English Touring Opera og á Rossini hátíđinni í Wildbad í Ţýskalandi söng hann hlutverk greifans Alberto í óperunni L’occasione fa il ladro. Haustiđ 2005 söng Garđar Thór hlutverk hertogans í Rigoletto viđ Opera Nordfjord í Noregi.

Hlín Pétursdóttir (Clorinda) lauk einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík áriđ 1992 undir leiđsögn Sieglinde Kahmann og stundađi framhaldsnám viđ óperudeild tónlistarháskólans í Hamborg. Hún var gestasöngvari í Stuttgart og Bern og ađ loknu námi fastráđin í Kaiserslautern. Međal hlutverka hennar ţar voru Adele í Leđurblökunni , Despina í Cosě fan tutte, Frasquita í Carmen og Sophie í Rosenkavalier og auk ţess m.a.hlutverk Xeniu í Boris Godunov í Frankfurt. Sumariđ 1997 söng hún hlutverk Gabriele í La vie Parisienne á óperettuhátíđinni í Mörbisch í Austurríki. Hlín var fastráđin viđ Theater am Gärtnerplatz í München frá 1997-2004. Međal hlutverka hennar ţar voru Olympia í Ćvintýrum Hoffmanns, Blonde í Brottnáminu úr kvennabúrinu, fyrsta dama í Töfraflautunni og Clorinda í Öskubusku. Á ţessum árum söng hún sem gestur í óperuhúsum víđsvegar í Ţýskalandi. Fyrsta hlutverk Hlínar í Íslensku óperunni var Musetta í La Bohčme 2001. Hún hefur haldiđ fjölda ljóđatónleika og hefur einnig sérstakan áhuga á nútímatónlist. Međal stćrri tónleika eru Carmina Burana og Requiem Mozarts í tónlistarhöllinni í Hamborg, Messías í Hamborg og Strahlsund, c-moll messa Mozarts í Hamborg og Kaiserslautern, óperettugala í Fílharmóníunni í Berlín og í Óperunni í Frankfurt. Hlín flutti heim haustiđ 2004 og hefur síđan ţá sungiđ á ljóđa- og kammertónleikum, m.a. á Sumartónleikum í Skálholti, auk ţess ađ koma fram í sjónvarpi og útvarpi.

Sesselja Kristjánsdóttir (Öskubuska) stundađi nám viđ Tónlistarskólann í Reykjavík. Ţađan hélt hún í framhaldsnám til Berlínar í Hochschule für Musik „Hanns Eisler“ og lauk ţar diplomprófi međ hćstu einkunn haustiđ 2000. Sumariđ 2001 lauk Sesselja svo eins árs framhaldsnámi frá sama skóla. Sesselja hlaut Bayreuth-styrk ţýsku Richard Wagner samtakanna sumariđ 2000. Hún hefur komiđ fram á tónleikum hér heima og erlendis, m.a. međ Sinfóníuhljómsveit Íslands. Međal óperuhlutverka er Nacbarin í Mavra, Lis í Wie werde ich reich und glücklich, Berta í Rakaranum í Sevilla viđ Nationale Reisoper í Hollandi. Sesselja var fastráđin viđ Íslensku óperuna 2002-2004. Hjá Íslensku óperunni hefur Sesselja sungiđ hlutverk ţriđju meyjar í Töfraflautunni, Rosinu í Rakaranum í Sevilla, Suzuki í Madama Butterfly, Isabellu í Ítölsku stúlkunni í Alsír, Charlottu í Werther og Cherubino í Brúđkaupi Fígarós. Hún söng titilhlutverkiđ í Carmen eftir Bizet í uppfćrslu Íslensku óperunnar og Óperustúdíós Austurlands á Eskifirđi. Haustiđ 2004 söng hún hlutverk betlikerlingar í Sweeney Todd hjá Íslensku óperunni.

Season Chiu (leikmynda-og búningahönnuđur) er fćdd í Hong Kong. Ađ loknu listanámi á Ítalíu og í Frakklandi vann hún sem ađstođarleikmynda- og búningahönnuđur á listahátíđunum í Avignon og Aix-en Provence í Frakklandi. Međal annarra verka hennar er leikmynd og búningar fyrir uppfćrslu á Pollicino, barnaóperu Hans Werner Henzes, viđ nemendaleikhús óperuhússins í Zürich, í leikhúsinu Biel-Solothurn Ítalska stúlkan í Alsír, La Traviata, Zarewitsch, Brottnámiđ úr kvennabúrinu og Fra Diavolo. Viđ Theater 11 í Zürich vann hún leikmynd og búninga fyrir barnaóperu svissneska tónskáldsins Andreas Nick og á listahátíđinni Ticino Musica Locarno fyrir óperuna Il matrimonio segreto eftir Cimarosa. Season er auk ţessa listmálari og vídeólistamađur. Hún hefur haldiđ sýningar m.a. í Zürich, París, Brussel, Clermont-Ferrand, Metz, Istanbúl, Madrid, Meiningen og Vichy. 

Jóhann Bjarni Pálmason (ljósahönnuđur) hóf störf hjá Íslensku óperunni áriđ 1984 og er nú fastráđinn ljósameistari Óperunnar. Árin 1991-1993 stundađi hann nám í ljósahönnun í The Central School of Speech and Drama í Lundúnum. Jóhann hefur hannađ lýsingu fyrir Íslenska dansflokkinn, Hitt leikhúsiđ, Ţjóđleikhúsiđ, Leikfélag Akureyrar, Frú Emelíu, leikhópinn Augnablik, The Icelandic Takeaway Theater, leikhópinn Á senunni og Sinfóníuhljómsveit Íslands auk Íslensku óperunnar.  

Zbigniew Dubik (konsertmeistari) nam fiđluleik viđ Tónlistarháskólann í Gdansk árin 1978-1983. Áriđ 1982 hóf hann ađ leika međ Pólsku Fílharmóníuhljómsveitinni og ferđađist međ henni sem konsertmeistari um Sovétríkin, Ţýskaland, England, Danmörku, Frakkland, Spán, Ítalíu og Bandaríkin. Gerđar voru upptökur fyrir pólsk, frönsk og ţýsk fyrirtćki, mestmegnis kammertónlist. Áriđ 1988 var Zbigniew ráđinn í fasta stöđu í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann gegndi jafnframt stöđu konsertmeistara í Hljómsveit Íslensku óperunnar frá árinu 1990-1994. Síđan Zbigniew fluttist til Íslands hefur hann leikiđ kammertónlist međ ýmsum hópum tónlistarmanna, svo sem Strengjakvartett Reykjavíkur, Bernardel strengjakvartettinum, Caput-hópnum, Kammersveit Reykjavíkur og Kammersveit Hafnarfjarđar. Auk ţessa kennir Zbigniew viđ Nýja Tónlistarskólann í Reykjavík. Haustiđ 2002 var Zbigniew konsertmeistari Hljómsveitar Íslensku óperunnar í sýningum á Rakaranum í Sevilla og haustiđ 2004 í Sweeney Todd.

Peter Ross (ađstođarmađur leikstjóra) er fćddur í Gleiwitz í Silesia. Hann nam tónlistarfrćđi, sálfrćđi og heimspeki viđ háskólana í Hamborg og Bern og lauk meistaragráđu 1975. Hann lauk doktorsprófi áriđ 1980 og fjallađi doktorsritgerđin um samband milli texta og tónlistar í óperum Verdis. Á árunum 1975-1988 var hann ađstođarmađur og fyrirlesari viđ háskólann í Bern. Frá árinu 1983 hefur hann starfađ sem tónlistarleikhúsfrćđingur viđ borgarleikhúsin í Bern, Dortmund og Stuttgart og enn fremur sem gestaleikhúsfrćđingur viđ óperurnar í Frankfurt, Dublin og Metz. Hann hefur sérstaklega lagt stund á rannsóknir á óperum eftir Verdi, Boito og Puccini og er međlimur í Centro Studi Giacomo Puccini í Lucca á Ítalíu.

Sólveig Elín Ţórhallsdóttir (sýningarstjóri) lćrđi sýningarstjórn í The Central School of Speech and Drama í London og útskrifađist ţađan áriđ 1997. Hún var sýningarstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar 1997 – 1999, verkefni ţar voru m.a. Söngvaseiđur, Á ferđ međ frú Daisy og Pétur Gautur. Sólveig var fastráđin sem sýningarstjóri á Stóra sviđi Borgarleikhússins hjá Leikfélagi Reykjavíkur frá árinu 1999 til haustsins 2004. Verkefni hennar hjá LR voru m.a. Litla Hryllingsbúđin, Kysstu mig Kata, Skáldanótt, Sól og Máni, Lína Langsokkur og Chicago. Einnig starfađi Sólveig međ Íslenska dansflokknum á ţeim tíma sem hún var viđ störf í Borgarleikhúsinu. Sólveig var sýningarstjóri í Sweeney Todd hjá Íslensku óperunni haustiđ 2004 og Tökin hert haustiđ 2005. Ennfremur í Kabarett, sem leikhópurinn Á senunni setti upp í samstarfi viđ Íslensku óperuna haustiđ 2005.

Antonía Hevesi (ćfingastjóri og píanóleikari á ćfingum) er fćdd í Ungverjalandi. Hún útskrifađist áriđ 1988 úr F. Liszt Tónlistarakademíunni í Búdapest međ meistaragráđu í kórstjórn og sem framhaldsskólakennari í söng og hljómfrćđi. Frá árinu 1990 stundađi hún orgelnám í Austurríki viđ Tónlistarháskólann í Graz hjá prófessor Otto Bruckner. Antonía fluttist til Íslands áriđ 1992. Áriđ 1998 gaf hún út 24 orgellög, eigin útsetningar fyrir orgel. Antonía hefur haldiđ fjölda tónleika sem orgelleikari og píanó-međleikari í Ungverjalandi, Austurríki, Svíţjóđ, Finnlandi, Frakklandi, Ţýskalandi, Spáni, Íslandi og Bretlandi. Hún hefur leikiđ á tónleikum víđa um land og spilađ inn á geisladiska. Jafnframt hefur hún tekiđ ţátt í masterklass-námskeiđum, m.a í „Académie Internationale d´Eté de Nice“ í Frakklandi í píanóundirleik hjá Dalton Baldwin og í söng hjá Lorraine Nubar. Einnig hjá Oliveru Miljakovic á Íslandi. Frá ţví í ágúst 2002 hefur Antonía veriđ listrćnn stjórnandi og píanóleikari hádegistónleikarađar Hafnarborgar. Antonía starfar nú sem orgel- og píanómeđleikari á Íslandi, organisti í Hafnarfjarđarkirkju og ćfingapíanisti viđ Íslensku óperuna. 

 

 




 Leita
 

 Óperublađiđ
ÓPERUDAGAR EVRÓPU 2007
ÁVARP FORMANNS VINAFÉLAGS ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
ÁVARP ÓPERUSTJÓRA
SÖGUŢRÁĐUR
ENGLISH SYNOPSIS
AĐSTANDENDUR SÝNINGARINNAR
ÖSKUBUSKA Á MILLISTRÍĐSÁRUNUM
HLJÓĐRITANIR Á ÖSKUBUSKU
SUNGIĐ UNDIR FÖLSKU FLAGGI
KANSÓNUR OG ÁSTARDÚETTAR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM
VARÚĐ: MANNĆTUPLANTAN NÁLGAST!
MARGAR SÓLIR Á LOFTI
FRÉTTIR AF VINAFÉLAGINU
HLAKKA TIL AĐ HEYRA Í KRISTNI Í RÓMEÓ OG JÚLÍU
VÍNARBORG – BORG TÓNLISTARINNAR
TILBÚINN RAUNVERULEIKI EĐA RAUNVERULEGUR TILBÚNINGUR
SAMSTARFS - OG STYRKTARFYRIRTĆKI
ÓPERUDAGATAL – VORMISSERI 2006
OPERA CALENDAR – SPRING 2006

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miđasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstrćti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miđasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.