Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200
 
ÁVARP FORMANNS VINAFÉLAGS ÍSLENSKU ÓPERUNNAR Senda greinina Senda Prenta textann

Tómas H. Heiðar skrifar um starfsemi Vinafélagsins

Kæri óperuvinur!

Helstu markmið Vinafélags Íslensku óperunnar eru af tvennum toga: Annars vegar að styðja við og efla starfsemi Íslensku óperunnar og hins vegar að auka almennan áhuga og þekkingu á óperulist á Íslandi. Vinafélagið hefur í gegnum tíðina lagt megináherslu á fyrrnefnda markmiðið, enda hefur það mun nánari tengsl við Óperuna en gengur og gerist meðal vinafélaga ópera erlendis og á t.d. tvo fulltrúa í stjórn Óperunnar og gefur út Óperublaðið í samvinnu við hana. Af nýlegum styrktarmálefnum má nefna að Vinafélagið festi kaup á ljósaborði og færði Óperunni að gjöf og fjármagnaði enn fremur endurbætur á hluta gólfefna í Gamla bíói sem þjóna m.a. þeim tilgangi að bæta hljómburð hússins.

Markmiðin tvö eru að sjálfsögðu nátengd en Vinafélagið hefur á undanförnum misserum lagt aukna áherslu á hið síðarnefnda, þ.e. að auka almennan áhuga og þekkingu á óperulist á Íslandi. Félagið hefur m.a. í samstarfi við Endurmenntun H.Í. gengist fyrir námskeiðum fyrir almenning í tengslum við uppfærslur Íslensku óperunnar og hefst næsta námskeið, sem helgað verður Öskubusku og Rossini, 7. febrúar nk. Enn fremur hefur félagið boðið upp á óperusýningar af DVD-diskum og verður því fram haldið í janúar og febrúar. 

Vinafélagið bryddaði upp á þeirri nýbreytni að efna til óperuferðar til útlanda sl. sumar. Farið var til Vínar og segir Þórhildur Líndal, stjórnarmaður í félaginu, frá ferðinni í blaðinu. Síðastliðið haust var svo ákveðið að efna til óperuferðar til New York í febrúar nk. en farið verður á eftirtaldar þrjár sýningar í Metropolitan-óperunni: Aidu eftir Verdi með Andreu Gruber, Olgu Borodinu, Johan Botha og Juan Pons í aðalhlutverkum; Rómeó og Júlíu eftir Gounod, þar sem Kristinn Sigmundsson fer með hlutverk Frère Laurent; og Samson og Dalilu eftir Saint-Saëns með Plácido Domingo og Olgu Borodinu í aðalhlutverkum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og er skemmst frá því að segja að þau 40 sæti sem í boði voru seldust upp á örfáum dögum. Því miður komust færri að en vildu og eru um 70 manns á biðlista.

Í ljósi hinna góðu undirtekta er gert ráð fyrir því að óperuferðir til útlanda verði fastur liður í starfsemi Vinafélags Íslensku óperunnar í framtíðinni. Þótt áhersla verði að sjálfsögðu lögð á óperusýningar í ferðum þessum verður einnig horft til annarra þátta menningar í víðtækasta skilningi þannig að um allsherjar menningarupplifun verði að ræða. Verið er að kanna möguleika á óperuferð til Pétursborgar næsta haust þar sem hina frægu Mariinsky-óperu er að finna. Til að koma til móts við þá sem ekki fengu sæti í ferðina til New York hefur stjórn Vinafélagsins ákveðið að láta þá sem eru á biðlista vegna þeirrar ferðar njóta forgangs hvað varðar næstu óperuferð, en stefnt er að því að fleiri sæti verði þá í boði. 

Tómas H. Heiðar
formaður Vinafélags Íslensku óperunnar




 Leita
 

 Óperublaðið
ÓPERUDAGAR EVRÓPU 2007
ÁVARP ÓPERUSTJÓRA
SÖGUÞRÁÐUR
ENGLISH SYNOPSIS
AÐSTANDENDUR SÝNINGARINNAR
KYNNING LISTAMANNA
ÖSKUBUSKA Á MILLISTRÍÐSÁRUNUM
HLJÓÐRITANIR Á ÖSKUBUSKU
SUNGIÐ UNDIR FÖLSKU FLAGGI
KANSÓNUR OG ÁSTARDÚETTAR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM
VARÚÐ: MANNÆTUPLANTAN NÁLGAST!
MARGAR SÓLIR Á LOFTI
FRÉTTIR AF VINAFÉLAGINU
HLAKKA TIL AÐ HEYRA Í KRISTNI Í RÓMEÓ OG JÚLÍU
VÍNARBORG – BORG TÓNLISTARINNAR
TILBÚINN RAUNVERULEIKI EÐA RAUNVERULEGUR TILBÚNINGUR
SAMSTARFS - OG STYRKTARFYRIRTÆKI
ÓPERUDAGATAL – VORMISSERI 2006
OPERA CALENDAR – SPRING 2006

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.