Viđar Gunnarsson bassi er fćddur í Óđinsvéum í Danmörku. Viđar stundađi nám viđ Söngskólann í Reykjavík ţar sem Garđar Cortes var ađalkennari hans. Síđan var hann viđ framhaldsnám hjá dr. Folke Sällström í Stokkhólmi 1981 til 1984. Viđar hefur ennfremur sótt ýmis námskeiđ m.a í ljóđasöng (Master Class) hjá dr. Eric Werba 1981 og óperunámskeiđ (Master Class) hjá prófessor Helene Carusso og Kostas Paskalis 1984 og 1987.
Međan á söngnámi stóđ söng hann um árabil međ kór Langholtskirkju, kór Lögreglunar í Reykjavík, kór Söngskólans í Reykjavík og kór Íslensku Óperunnar. Viđar lét félagsmál söngvara til sín taka međan hann var enn búsettur á Íslandi og var formađur deildar íslenskra óperusöngvara í Félagi íslenskra leikara frá 1988 til 1989.
Ađ loknu stúdentsprófi stundađi hann ýmis störf m.a. kennslu viđ Árbćjarskóla, sem lögreglumađur í Reykjavík og var deildarstjóri hjá Ríkisútgáfu námsbóka og Námsgagnastofnun. Ađ námi loknu í Svíţjóđ starfađi hann hjá bókaforlaginu Vöku-Helgafelli 1984 til 1989 ásamt ţví ađ syngja reglulega viđ Íslensku Óperuna frá 1984 og Ţjóđleikhúsiđ frá 1985 en hann söng m.a. hlutverk ćđstaprestsins Ramfis í Aidu, Ferrando í Il Trovatore, Masetto og höfuđsmannsins (Don Giovanni).
Hann var ráđinn sem óperusöngvari viđ Kammeróperuna og Schönbrunn Schloßtheater í Vínarborg 1989 til 1990 ţar sem hann söng hlutverk Sarastrós í Töfraflautunni. Hann var fastráđinn óperusöngvari viđ Ríkisleikhúsiđ í Wiesbaden frá 1990 - 1995 en ţar söng hann m.a. Rocco í Fidelio, Il Grand‘Inquisitore í Don Carlos, Padre Guardiano í Á valdi örlaganna, hlutverk tónlistarkennarans Don Basilio í Rakaranum frá Sevilla, hlutverk Regins í Rínargullinu, Hundings í Valkyrjunum og Marke konung í Tristan og Isolde.
Auk ţess hefur hann komiđ fram víđa m.a. í óperuhúsunum í Bonn, Essen, Mannheim, Frankfurt, Stuttgart, Wiesbaden og Kassel í Ţýskalandi. Einnig hefur hann komiđ fram í Genf og Bern í Sviss, Vín í Austurríki, Prag í Tékklandi, í Tel Aviv í Ísrael og í Reykjavík og unniđ međ stjórnendum eins og Maurizio BARBACINI, Bertrand de BILLY, Oleg CAETANI, prófessor . Wolf - Dieter HAUSCHILD, Eliahu INBAL, Jiri KOUT, Armin JORDAN, Jonathan NOTT, Rico SACCANI, Petri SAKKARI, Ulf SCHIRMER, prófessor Rheinhard SCHWARZ, Marc SOUSTROT, Robin STAPLETON, Simone YOUNG og Alfred WALTER.
Viđar hefur sungiđ á sínum ferli um ţađ bil 70 hluverk eins og t.d. Colline í La Bohčme, Pater Guardiano í Á valdi örlaganna, Fiesco í Simone Boccanegra, Zaccaria í Nabucco, Grand‘Inquisitor í Don Carlos, konunginn og Ramfis í Aida, Sarastro í Töfraflautunni, Commedatore og Leporello í Don Giovanni, Boris í Boris Godunow, Don Basilio í Rakaranum frá Sevilja, risanna Fasolt og Fáfni í Rínargullinu, Hunding í Valkyrjunum, illvirkjann Högna í Götterdemmerung, Heinrich konung í Lohengrin, Hermann landgreifa í Tannhäuser, Daland í fljúgandi Hollendingnum, Marke konung í Tristan og Isolde og Titurel í Parsifal.
Í september 2004 debúterađi Viđar í Ríkisóperunni í Berlín en ţar söng hann hlutverk konungsins í Aidu undir stjórn Simone Young.
Heimasíđa Viđars Gunnarssonar
Senda Viđari tölvupóst
|