Ágúst Ólafsson baritónsöngvari hlaut Grímuverðlaunin 2010 sem Söngvari ársins fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum í sviðssetningu Íslensku óperunnar. Ágúst söng hlutverk Belcore, sem er eitt aðalhlutverkanna í óperunni.
Alls hlaut Íslenska óperan fjórar tilnefningar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, í ár. Þau Dísella Lárusdóttir sópran, Garðar Thór Cortes tenór og Bjarni Thor Kristinsson bassi, auk Ágústs Ólafssonar, voru öll tilnefnd í flokknum Söngvari ársins. Af þeim fimm söngvurum sem tilnefndir voru í þeim flokki komu fjórir úr röðum Óperunnar, en fimmti tilnefndi söngvari ársins var Kristjana Stefánsdóttir í sýningunni Jesús litli.
Tveir tilnefndu söngvaranna, þeir Garðar Thór Cortes og Bjarni Thor Kristinsson, hafa verið tilnefndir til Grímunnar í sama flokki áður og hlaut sá síðarnefndi Grímuna árið 2007 fyrir hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart.
|