Íslenska óperan hlýtur fjórar tilnefningar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna, árið 2010. Hér er um að ræða aðalsöngvarana fjóra úr Ástardrykknum eftir Donizetti, þau Dísella Lárusdóttir sópran, Garðar Thór Cortes tenór, Bjarni Thor Kristinsson bassi og Ágúst Ólafsson baritón, og eru þau öll tilnefnd í flokknum Söngvari ársins. Af þeim fimm söngvurum sem eru tilnefndir í þeim flokki koma fjórir úr röðum Óperunnar, en fimmti tilnefndi söngvari ársins er er Kristjana Stefánsdóttir í sýningunni Jesús litli. Íslenska óperan óskar þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Tveir söngvaranna, þeir Garðar Thór Cortes og Bjarni Thor Kristinsson, hafa verið tilnefndir til Grímunnar í sama flokki áður og hlaut sá síðarnefndi Grímuna árið 2007 fyrir hlutverk Osmin í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart.
Grímuverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní nk.
|