Tvennir tónleikar Listahátíðar í Reykjavík eru framundan í Íslensku óperunni. Fimmtudagskvöldið 3. júní verður glænýtt tón- og textaverk eftir Benedikt H. Hermannsson frumflutt, en í verkinu er íslensku og skosku att saman, svo úr verður tungumál sem hljómar kunnuglega, en er þó framandi. Söngvararnir tveir, Benedikt H. Hermannsson og hinn skoski Alasdair Roberts, syngja persónulega og nærgöngula texta hvor á sínu tungumálinu – stundum má þeir hvor annan út en annars staðar hjálpast þeir að og lyfta hvor öðrum upp. Blásarasveit Reykjavíkur heldur söngvunum uppi og flæðir inn í textaeyður og stundum tekur hún völdin og sprengir þakið af húsinu.
Föstudagskvöldið 4. júní munu hins vegar íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartettinn The Formalist Quartet leiða saman hesta sína og frumflytja á Íslandi eitt af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar; Vortex Temporum eftir franska tónskáldið Gérard Grisey. Tónlist Grisey hefur lítið hljómað á Íslandi en hann er eitt af höfuðskáldum svokallaðrar spektraltónlistar. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson, innblásið af einum af hans lærifeðrum, einmitt Gérard Grisey. Einnig verða tveir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe fluttir á tónleikunum.
Vefur Listahátíðar í Reykjavík - smelltu hér til að lesa meira um tónleikana.
|