Íslensk stúlka, Ellen Margrét Bæhrenz, sautján ára, hafnaði nýverið í þriðja sæti í alþjóðlegu ballettkeppninni Stora Daldansen í Svíþjóð, en undankeppnin á Íslandi fór fram í Íslensku óperunni í febrúar. Auk Ellenar Margrétar kepptu þau Karl Friðrik Hjaltason, sem er sextán ára, og Sigrún Ósk Stefánsdóttir, átján ára, einnig í keppninni. Þau eru öll nemendur við Listdansskóla Íslands.
Mun árangur Ellenar Margrétar vera besti árangur Íslendings í þessari keppni frá upphafi. Hún dansaði tvo sólódansa í keppninni, annan úr ballettnum Coppeliu og hinn úr Le Corsair. Birgitte Heide hafði yfirumsjón með þjálfun keppendanna og var þeim til halds og trausts úti.
Stora Daldansen ballettkeppnin fór fram dagana 13. - 15. maí í Falun í Svíþjóð. Keppnin er opin ballettnemum á aldrinum 15-17 ára og 18-20 ára frá Norðurlöndunum og baltnesku löndunum. Keppnin hefur verið haldin árlega frá 1988.
|