 Þrennir útgáfutónleikar fara fram í Íslensku óperunni á næstunni. Á fimmtudagskvöldið 27. maí kl. 20.30 kynnir Ólafur Arnalds aðra plötu sína, ...and they have escaped the weight of darkness. Kvöldið eftir, föstudagskvöldið 28. maí fagnar Eivör Pálsdóttir útkomu nýjustu afurðar sinnar, plötunnar Larva, á tvennum tónleikum kl. 19 og aftur kl. 22 en uppselt er á seinni tónleikana, en þetta mun vera sjöunda hljóðversplata hennar.
Þann 5. júní kl. 21 gleðjast Ljótu hálfvitarnir síðan yfir fimmtu plötu sinni með sama nafni, en hún er græn að lit til aðgreiningar frá fyrri plötum sveitarinnar.
|