Á næstu tónleikum Listahátíðar í Reykjavík í Íslensku óperunni munu Ásgerður Júníusdóttir messósópran og Jónas Sen píanónleikari og útsetjari flytja sönglög sem mörgum eru kunn og kær eftir Björk Guðmundsdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson og Magnús Blöndal Jóhannsson í nýjum útsetningum og útfærslum. Þetta eru tónleikar þar sem stefnt er saman þremur ólíkum tónskáldum sem eiga það sameiginlegt að hafa samið tónlist sem er á mörkum klassískrar tónlistar og annarra tónlistarstefna og heyra má áhrif frá jazz, kvikmyndatónlist, dægurtónlist og popptónlist. Á tónleikunum mun Jónas leika á orgel, píanó, selestu, sembal og rafmagnshljómborð. Hann lék á þessi hljóðfæri og fleiri á yfir 70 tónleikum í heimsreisu Bjarkar á árunum 2007-2008 og hefur hann nú útsett yfir fjörutíu lög hennar fyrir rödd og ýmis hljómborðshljóðfæri.
Miðaverð á tónleikana er 2.900 kr. og er hægt að kaupa miða á vef Listahátíðar.
Sveitin milli sanda – myndband með Ásgerði og Jónasi úr þættinum Átta Raddir sem sýndur verður í Sjónvarpinu í haust.
Um samstarf Jónasar Sen og Bjarkar: Jónas Sen var hljómborðsleikarinn á heimsreisu Bjarkar Guðmundsdóttur á árunum 2007 og 2008. Þar lék hann á píanó, kirkjuorgel, sembal, selestu og rafhljómborð. Á hverjum tónleikum, sem voru yfir sjötíu talsins, tóku þau Björk yfirleitt eitt lag saman, nokkurskonar dúett. Þar á meðal var lagið Cover Me eftir Björk í alveg nýrri útsetningu Jónasar. Fleiri útsetningar urðu til og þegar heimsreisunni var lokið bað Björk Jónas um að útsetja um fjörutíu lög hennar fyrir rödd og ýmis hljómborðshljóðfæri sem myndu koma út í tveimur bókum. Í annarri bókinni er áherslan á vinsælustu popplög Bjarkar, þar eru útsetningarnar fyrir píanó og/eða gítar, auk þess að innihalda sönglínur og texta. Bókin er ætluð alþýðusöngvurum og eru tilvalin í útileguna! Í hinni bókinni eru útsetningarnar meira krefjandi, lögin eru flóknari, dýpri og stundum tilraunakenndari. Bókin mun, rétt eins og hin, innihalda sönglínur og texta, en meðleikurinn er hugsaður fyrir orgel, selestu, sembal eða píanó.
Nótur með tónlist Bjarkar hafa hingað til verið af mjög skornum skammti, svo segja má að útgáfan marki ákveðin tímamót á ferli Bjarkar. Hún stígur hér fram sem tónskáld, sem hún er ekkert síður en söngkona. Hún samdi fyrsta lagið sitt aðeins ellefu ára gömul og flest lögin sem hún syngur eru eftir hana sjálfa.
|