Næstu tónleikar Listahátíðar í Íslensku óperunni verða miðvikudaginn 19. maí kl. 20, en þá stilla Sinfóníuhljómsveit Vaasaborgar, CAPUT og einleikarar saman strengi sína og flytja tónlist eftir íslensk og finnsk tónskáld frá síðustu 100 árum: Sibelius, Markus Fagerudd, Toivo Kula og Jón Nordal. Einnig verður Flautukonsert nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson frumfluttur á Íslandi. Þrír einleikarar og einn söngvari koma fram á tónleikunum: Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Kolbeinn Bjarnason, flauta, Tatu Kantoma, harmónikka og Jorma Uotinen chanson-söngvari. Stjórnandi er Guðni Franzson.
|