Fjöldi manns sótti sýningar Leikfélags Akureyrar á 39 þrep helgina 7. - 9. maí í Íslensku óperunni. Það var frábær stemmning, mikið hlegið og dynjandi fagnaðarlæti í lok sýninga. Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á 39 þrepum í Íslensku óperunni föstudaginn 21. maí.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi gamanleikinn 39 þrep í janúar síðastliðnum, en uppselt var á nær 50 sýningar fyrir norðan. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. 39 þrep byggir á samnefndri kvikmynd Alfred Hitchcock eftir skáldsögu John Buchan. Leikgerðin er eftir Patrick Barlow byggð á hugmynd Simon Corble og Nobby Dimon.
Þar segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. 39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn Tony verðlaun árið 2008.
Leikarar í sýningunni eru Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Leikmynd hannaði Finnur Arnar Arnarson og búninga Rannveig Eva Karlsdóttir. Halldór Örn Óskarsson hannaði lýsingu og Gunnar Sigurbjörnsson hljóðmynd.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig hinum vinsælu sýningum Sex í sveit, Fló á skinni og Fúlar á móti.
Hægt er að nálgast upplýsingar um sýninguna og kaupa miða hér á síðunni til hægri. Sími miðasölu er 511 4200.
|