Árlega úthlutar Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar styrk til efnilegra söngnema til framhaldssöngnáms erlendis. Að þessu sinni hlaut Andri Björn Róbertsson bassa-baritón styrk að fjárhæð 700.000 kr. Afhendingin fór fram í Íslensku óperunni í vikunni og afhenti Haukur Björnsson styrkinn fyrir hönd sjóðsins.
Marinó Pétursson, sem Söngmenntasjóðurinn dregur nafn sitt af, var mikill áhugamaður um tónlist, en ævistarf hans varð heildsala utan síðustu æviárin sem hann stundaði sjóróðra frá Bakkafirði. Hann mælti svo fyrir að allar eigur hans skyldu renna í söngmenntasjóð eftir sinn dag og er Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar einn öflugasti sjóður landsins til styrktar framhaldsmenntun í söng.
|