Íslenska óperan tekur í ár þátt í Evrópska óperudeginum, 8. maí, sem er árlegur viðburður Samtaka óperuhúsa og -hátíða í Evrópu (Opera Europa) og fer fram í fjölda óperuhúsa í mörgum löndum álfunnar nú um helgina. Þema Evrópska óperudagsins í ár er „Crossing brigdges“ og hyggjast mörg hús opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi þann dag. Íslenska óperan ætlar hins vegar að fara út meðal fólksins á nokkrum fjölförnum stöðum og leitast þannig við að „byggja brýr“ til áhorfenda sinna, núverandi, fyrrverandi og framtíðaráhorfenda, með því að koma þeim á óvart með aðstoð nokkurra af okkar fremstu óperusöngvurum.
Hafið augun og eyrun opin í Reykjavík og nágrenni laugardaginn 8. maí, því óperan mun svo sannarlega koma einhverjum á óvart, einhvers staðar í borginni þann dag.
|