Vegna mikillar eftirspurnar sýnir Leikfélag Akureyrar hinn bráðskemmtilega gamanleik 39 þrep í Íslensku óperunni í maí, en uppselt var á nær 50 sýningar á Akureyri. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig sýningunum Sex í sveit og Fló á skinni.
Sýningar í Íslensku óperunni verða föstudaginn 7. maí, laugardaginn 8. maí og sunnudaginn 9. maí kl. 20 og er hægt að kaupa miða í miðasölu Íslensku óperunnar eða hér á síðunni. Miðaverð er 3.200 kr.
39 þrep er leikgerð Patrick Barlow, sem byggir á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, The 39 Steps, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. Þar segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Leikarar í sýningunni eru Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Leikmynd hannaði Finnur Arnar Arnarson og búninga Rannveig Eva Karlsdóttir. Halldór Örn Óskarsson hannaði lýsingu og Gunnar Sigurbjörnsson hljóðmynd.
|