Sjöundu og síðustu hádegistónleikar Óp-hópsins í Íslensku óperunni í vetur verða þriðjudaginn 18. maí kl. 12.15. Fram koma meðlimir hópsins ásamt Antoníu Hevesí píanóleikara og Gissuri Páli Gissurarsyni tenórsöngvara. Efnisskráin er að þessu sinni alíslensk og eru á efnisskránni aríur, sönglög og samsöngvar úr íslenskum óperum og söngleikjum eftir Jón Ásgeirsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Þórunni Guðmundsdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson, Tryggva Baldvinsson, o.fl.
Miðaverð er aðeins 1.000 kr. og taka tónleikarnir um 40 mínútur í flutningi. Gestir geta keypt samlokur, sælgæti og drykki í anddyri Íslensku óperunnar fyrir og eftir tónleikana.
|