Óperan Armida eftir Rossini verður sýnd í Kringlubíói næstkomandi laugardag, 1. maí, kl. 17, beint frá Metropolitan-óperunni í New York. Er þetta síðasta beina útsending vetrarins hjá Sambíóunum. Armida, sagan ef göldróttu drottningunni sem lokkar menn í eyjafangelsið sitt, hefur orðið fjölda tónskálda að innblæstri fyrir óperur, en þeirra á meðal má nefna Gluck, Handel, Haydn og Dvorák. Renée Fleming fer með aðalhlutverkið í þessari útgáfu Rossinis og syngur á móti hvorki fleiri né færri en sex tenórum. Tony-verðlaunahafinn Mary Zimmerman leikstýrir nýrri uppfærslu á verki sem hún kallar falinn fjársjóð og gimsteinaskrín. Samkvæmt Zimmerman býr þessi frumlega og töfrandi saga yfir epískum og heillandi eiginleikum og einstökum, sjónrænum þáttum og verður spennandi að sjá útkomuna á hvíta tjaldinu.
Miðaverð er 2.200 kr. og er hægt að kaupa miða á www.midi.is.
Stjórnandi: Riccardo Frizza Leikstjóri: Mary Zimmerman Leikmynda- og búningahönnuður: Richard Hudson Ljósahönnuður: Brian MacDevitt Danshöfundur: Graciela Daniele
Armida: Renée Fleming Rinaldo: Lawrence Brownlee Goffredo: Bruce Ford Gernando: José Manuel Zapata Carlo: Barry Banks Ubaldo: Kobie van Rensburg
|