Þó nokkrir af viðburðum Listahátíðar í Reykjavík í ár fara fram í Íslensku óperunni, og eru þeir ekki af verri endanum. Fyrsti viðburðurinn sem fer fram í húsinu, eru tvöfaldir djasstónleikar föstudaginn 14. maí kl. 20 þar sem Marilyn Mazur og Sidsel Endresen stíga á stokk ásamt framúrskarandi norrænum jazzistum á tvöföldum tónleikum í tilefni 20 ára afmælis Jazzhátíðar Reykjavíkur og 40 ára afmælis Listahátíðar í Reykjavík. Það sem sameinar þessar frábæru tónlistarkonur er sjálfsprottin tón- og taktsköpun sem verður að melódískum og rytmískum galdri í meðförum þeirra.
Marilyn Mazur er gríðarlegur áhrifavaldur í jazz- og heimstónlist og lék hún lengi á slagverk með Miles Davis og Wayne Shorter áður en hún fór að einbeita sér að eigin sköpunarferli. Sidsel Endresen hefur um árabil veitt ferskum vindum inn í spunatónlist um allan heim og tilheyrir þeim hópi listamanna sem skilgreinir og endurskilgreinir tónlistina í sífellu. Með Marilyn leika Nils Petter Molvær á trompet og Eivind Aarset á gítar, en saxófónleikarinn Håkon Kornstad stígur á svið með Sidsel Endresen.
Næstu tónleikar Listahátíðar í húsinu verða miðvikudaginn 19. maí kl. 20, en þá stilla Sinfóníuhljómsveit Vaasaborgar, CAPUT og einleikarar saman strengi sína og flytja tónlist eftir íslensk og finnsk tónskáld frá síðustu 100 árum: Sibelius, Markus Fagerudd, Toivo Kula og Jón Nordal. Einnig verður Flautukonsert nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson frumfluttur á Íslandi. Þrír einleikarar og einn söngvari koma fram á tónleikunum: Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Kolbeinn Bjarnason, flauta, Tatu Kantoma, harmónikka og Jorma Uotinen chanson-söngvari. Stjórnandi er Guðni Franzson.
|