Nokkrir viðburðir verða á Barnamenningarhátíð í Reykjavík í Íslensku óperunni í vikunni, en hátíðin hefst mánudaginn 19. apríl og stendur til sunnudagsins 25. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem að Reykjavíkurborg stendur að heilli hátíð sem er algjörlega helguð börnum og þeirra listsköpun og menningu.
Viðburðirnir sem verða í Íslensku óperunni eru annars vegar Tíminn líður, trúðu mér!, sem er samstarfsverkefni Stúlknakórs Reykjavíkur og Kramhússins og verður sýnt miðvikudaginn 21. apríl kl. 18 og svo aftur kl. 20. Saman standa þau fyrir glæsilegri söng-, dans- og leiksýningu, þar sem um 110 börn frá sjö ára aldri skapa einlæga og samfellda sýningu sem samanstendur af sjö dansatriðum og þrettán söngnúmerum. Yfirskrift sýningarinnar er “Tíminn líður, trúðu mér!” en þar minna börnin foreldra á hversu dýrmæt samvera fjölskyldunnar er. Stúlknakórinn er undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur og stjórnandi Kramhússins er Hafdís Árnadóttir.
Hins vegar heldur Lúðrasveit verkalýðsins sína árlegu barnatónleika í Íslensku óperunni laugardaginn 24. apríl kl. 14. Á efnisskránni er m.a. Happy Go Lucky, Buglers Holiday, Sandpaper Ballet þar sem sandpappír skipar stóran sess í slagverkssveitinni, þekkt lag eftir Michael Jackson og syrpa úr Kardimommubænum svo fátt eitt sé nefnt. Kynnir á tónleikunum verður Felix Bergsson. Stjórnandi Lúðrasveitar verkalýðsins er Snorri Heimisson. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is - þar sem glöggt má sjá hvað börnin í borginni eru hugmyndarík og skapandi!
|