Óperan Hamlet eftir Ambroise Thomas, byggð á samnefndu leikriti Shakespeares, verður sýnd í Kringlubíói miðvikudaginn 31. mars kl. 18. Um er að ræða endurflutning á beinni útsendingu frá Metropolitan-óperunni í New York síðastliðinn laugardag. Miða má kaupa á www.midi.is en nánari upplýsingar má fá á opera.sambioin.is. Miðaverð er 2.200 kr.
Verk Shakespeares hafa verið uppspretta fleiri óperuaðlaganna en nokkurs annars rithöfundar. Simon Keenlyside og Natalie Dessay nýta einstaka leik- og sönghæfileika sína til að túlka tvær af eftirminnilegustu persónum skáldsins mikla í þessari nýju uppfærslu á Hamlet eftir Ambroise Thomas. Franska tónskáldið bætti hlutverk Ófelíu með lengdu sturlunaratriði sem þykir meðal þeirra merkustu í óperuheiminum.
Stjórnandi: Louis Langrée Leikstjórar: Patrice Caurier og Moshe Leiser Leikmyndahönnuður: Christian Fenouillat Búningahönnuður: Agostino Cavalca Ljósahönnuður: Christophe Forey
Ófelía: Marlis Petersen Geirþrúður: Jennifer Larmore Laertes: Toby Spence Hamlet: Simon Keenlyside Kládíus: James Morris
|