Tónlistarfólk sem tengist Íslensku óperunni kom við sögu í ýmsum flokkum á Íslensku tónlistarverðlaununum, sem haldin voru í húsinu á dögunum. Ber fyrst að nefna Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóra og tónskáld, sem hlaut tvenn verðlaun fyrir tónsmíðar sínar, bæði í flokknum Tónverk ársins fyrir verkið Bow to string, en Daníel er ennfremur tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir verkið, sem og í flokknum Höfundur ársins, fyrir tónverkin á plötunni Processions.
Þá var Kurt Kopecky, hljómsveitarstjóri og fyrrum tónlistarstjóri Íslensku óperunnar, hljómsveitarstjóri á geislaplötunni sem hlaut verðlaun í flokki Plötu ársins á sviði sígildrar og samtímatónlistar; Haydn-píanókonsertum í flutningi Eddu Erlendsdóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Loks var Ágúst Ólafsson baritónsöngvari tilnefndur í flokki Rödd ársins, m.a. fyrir túlkun sína á Belcore í uppsetningu Íslensku óperunnar á Ástardrykknum síðastliðið haust.
|