Daníel Bjarnason, tónskáld og hljómsveitarstjóri, sem m.a. stjórnaði uppfærslu Íslensku óperunnar á Ástardrykknum síðastliðið haust, er tilnefndur fyrir Íslands hönd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs ásamt Þuríði Jónsdóttur.
Daníel er tilnefndur fyrir verkið ,,Bow to String“, sem er að finna á hinni nýútkomnu plötu Processions, sem ennfremur hefur hlotið afbragðs viðtökur. Alls keppa 13 verk um hin virtu verðlaun, en tilkynnt verður um verðlaunahafann 1. júní næstkomandi. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í lok október.
|