Nemendaópera Söngskólans sýnir Don Djammstaff í samvinnu við Íslensku óperuna fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20 og laugardaginn 6. febrúar kl. 14. Sýningin er samsett úr 17 atriðum úr 14 óperum eftir 9 tónskáld og sungin á 4 tungumálum. Hún fjallar um ævintýri vampírunnar Don Djammstaff, sem er yfir sig ástfanginn af mennskri konu, Paminu, og setur allt í uppnám til að ná ástum hennar. Inn í framvinduna fléttast síðan hefndir kvenna og vald örlaganna.
Alls taka 31 af nemendum Óperudeildar Söngskólans í Reykjavík þátt í sýningunni og bregða sér m.a. í gervi vampíra, verndarengla og norna. Anton Steingruber og Hrönn Þráinsdóttir hafa annast tónlistarundirbúning og Hrönn leikur undir á píanó. Leikstjóri sýningarinnar og höfundur dansa er Sibylle Köll.
Miðaverð er aðeins 3.000 kr. Sala aðgöngumiða hefst fimmtudaginn 28. janúar og verða miðar seldir í miðasölu Íslensku óperunnar, sem er opin alla daga kl. 14-18, en svarað er í síma frá kl. 10 alla virka daga. Sími miðasölu er 511- 4200 og netfangið er midasala@opera.is. Einnig er hægt að kaupa miða á netmiðasölunni á www.opera.is