Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópransöngkona og meðlimur í Óp-hópnum, fékk nýlega þær gleðilegu fréttir að hún hafnaði í fyrsta sæti í alþjóðlegu söngvarakeppninni Barry Alexander International Vocal Competition. Þá lenti Rúnar Þór Guðmundsson, tenórsöngvari og einnig meðlimur í Óp-hópnum, í öðru sæti í keppninni. Verðlaunin felast meðal annars í tækifæri Bylgju Dísar til að koma fram sem söngvari í einu frægasta tónleikahúsi heims - Carnegie Hall í New York. Verða tónleikar hennar þar í lok janúar. Rúnar Þór heldur hins vegar tónleika í New York í haust í kjölfar keppninnar.
Nánari upplýsingar um keppnina má sjá með því að smella hér.
|