Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks er barnasýning sem verður frumsýnd þann 30. janúar í Íslensku óperunni og skartar sjálfum Sveppa í aðalhlutverki. Með honum á sviðinu er Orri Huginn Ágústsson sem er áhorfendum góðkunnugur úr sjónvarpsþáttunum Pressan, barnaleikritinu Abbababb og fleiri verkum. Sýningin byggir á barnaplötu Gísla Rúnars, Algjör sveppur frá árinu 1978, sem þykir fyrir löngu orðin sígild. Sveppi fer á kostum í aðalhlutverkinu og Orri Huginn bregður sér í allra kvikinda líki á meðan sýningunni stendur. Leikstjóri er Felix Bergsson og tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.
Sýnt verður flesta laugardaga og sunnudaga kl. 13 og 16 og er miðasala hafin á sýningar.
|