Lostafullir listræningjar á vegum samnefnds þáttar í Ríkisútvarpinu sóttu hádegistónleika Óp-hópsins síðastliðinn þriðjudag og ræddu síðan tónleikana í þættinum um síðustu helgi. Er skemmst frá því að segja að listræningjarnir Birna Þórðardóttir og Friðrik Sólnes, ásamt þáttastjórnandanum Jórunni Sigurðardóttur, voru hæstánægðir með tónleikana. Tók Birna þannig til orða að hádegistónleikar Óp-hópsins, sem eru mánaðarlega í Íslensku óperunni, væru besti skyndibitinn í bænum.
Þá var lettneska sópransöngkonan Inessa Galante viðstödd tónleikana og ræddi við nokkra af söngvurunum eftir þá.
Hægt er að hlusta á þáttinn næstu tvær vikur með því að smella hér.
|